samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Varðandi breytingar á samgönguáætlun þá get ég talað um eina breytingu sem er mjög áhugaverð. Í síðustu samþykktu samgönguáætlun frá 2020 voru Fjarðarheiðargöng í efsta sæti. Númer 2 voru Fjarðagöng. Í tillögu frá 2023 eru Fjarðarheiðargöng vissulega í efsta sæti en hvað er í 2. sæti? Fljótagöng eru í 2. sæti. Hvað varð um Fjarðagöng? Þeim er hent í 7. sæti. Við erum því ekki með einhverja stórkostlega byltingu hér við breytingu á forgangsröðun varðandi Fljótagöng, að færa þau úr 2. sæti í 1. sæti. Það er ekki mikil breyting, ekki miðað við það sem var frá 2020 til ársins 2023. Það er ekkert nýtt undir sólinni hvað þetta varðar.
Við erum með heildrænt mat sem lýtur að jarðgangaframkvæmdum og byggir á heildstæðu mati um hvað er þjóðhagslega hagkvæmt og best fyrir samfélagið. Það er ágætt fyrir hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson að spyrja sig að því hvernig stóð á því að það væri ekki búið að grafa nein göng frá árinu 2020. Hvað var t.d. í gangi þar með alla Covid-peningana? Af hverju voru þeir ekki notaðir í Fjarðarheiðargöng? Hvað gerðist? Gæti verið að einhver flokkur sem hann kannski tilheyrir hafi stoppað þá framkvæmd og að sú ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til að fara í þessa stórkostlega dýru framkvæmd sem raunverulega kemur ekki á hringtengingu? Fjarðagöng gera það. Göngin í gegnum Mjóafjörð og Seyðisfjörð koma á hringtengingu. Með þeim er styttra til stærsta vinnustaðarins. Málið er það varðandi Fjarðagöng og Fjarðarheiðargöng að í skýrslu frá 2019 var litið á þetta sem eina framkvæmd, Fjarðarheiðargöng og Fjarðagöng. Það var slitið í sundur með tillögu 2023. Það sem við erum að gera er að koma hringtengingu strax í 1. sæti. Það er ekki stórkostleg breyting. Vissulega er það pólitísk ákvörðun, þetta er lagt fyrir þingið og þar þarf stjórnarmeirihlutinn að samþykkja og vonandi allur þingheimur þannig að ég get ekki séð að þingið sé að binda hendur sínar eða eigi að binda hendur sínar og geti ekki breytt valkostum í samgönguframkvæmdum. (Forseti hringir.) Vandamálið er hins vegar það að svo litlar rannsóknir hafa átt sér stað að valkostirnir eru ekki miklir. (Forseti hringir.) Síðasta ríkisstjórn stóð sig ekki nægilega vel í því að undirbúa rannsóknir fyrir framkvæmdir sem geta talist valkostir fyrir ný stjórnvöld þegar þau koma að völdum.