157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:12]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að hæstv. ráðherra hafi raunverulega ekki svarað spurningunni sem og hvaða áhættu þetta getur haft í för með sér. Þegar svona miklar breytingar koma fram eftir kosningar og forgangsröðuninni er breytt getur ný ríkisstjórn bara komið eftir næstu kosningar, hvenær sem þær verða, og gjörbreytt öllum forsendum áætlunarinnar. Þessi 15 ára áætlun er gríðarlega afturhlaðin á annað og þriðja tímabilið. Á ákveðnum svæðum eru í raun allar framkvæmdir settar á annan og þriðja hluta, það sem hefst eftir fimm eða tíu ár. Það er ekki mikið öryggi í því, ef miðað er við hvernig hér er talað um þessa hluti og hvernig við erum að forgangsraða, að það gildi eftir fimm eða tíu ár. Það hefur kannski lítið vægi í þessu. Í stóru myndinni er í raun fátt að gerast á fyrsta tímabilinu. Þetta er fyrst og fremst annað og þriðja tímabilið sem eitthvað kemur fram á stórum svæðum. (Forseti hringir.) Það verður kannski að taka það í síðari umræðu. Það er erfitt að koma því inn í þetta stutta andsvar.