samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hér er verið að mæla fyrir samgönguáætlun sem er fullfjármögnuð og menn geta haft mismunandi skoðanir á því hvað það þýðir að hún sé fullfjármögnuð. Í mínum huga þýðir það að áætlunin er í samræmi við fjármálaáætlanir ríkisins til fimm ára hvað varðar tekjur og gjöld. Gjöldin sem eiga að fara til samgöngumála í samgönguáætlun miðast við fjármálaáætlun og við ætlum að stofna innviðafélag til að tryggja framkvæmdir á Fljótagöngum, Ölfusárbrú og Sundabraut með innviðafélagi með þeim hætti sem ég hef lýst áður. Fyrri samgönguáætlanir, tillögurnar frá 2023 og 2020, voru óskalistar. Það segir beinlínis í tillögunni frá 2023 að vilji standi til að stofna innviðafélag. Við ætlum að gera það og á því er stórkostlegur munur. Þú getur verið með alls konar óskalista eða ófjármagnaðar tillögur. Þú getur keyrt um landið og velt vöngum yfir því hvar eigi að gera göng og hvar eigi að gera brýr og vegi án þess að hafa fjármögnunina. Það er ekkert mál að gera það. Við erum hins vegar raunsæ með fjármögnunina. Í því felst stórkostlegur munur. Óskalistar síðustu ríkisstjórnar voru bara óskalistar. (Forseti hringir.) Það er mikill munur hér á. Við horfum á þetta með öðrum hætti og byrjum á jarðgöngum sem voru (Forseti hringir.) númer tvö í tillögu frá 2023. Hér er verið að gera nákvæmlega það sama og gert var varðandi Óshlíðina og Bolungarvíkurgöng. (Forseti hringir.) Varðandi Ólafsfjarðarmúla þá komu Ólafsfjarðargöng. Við ætlum að taka Almenninga og Mánaskriður úr sambandi, ekki hafa vegi þar, með Fljótagöngum. Hið sama á við um Súðavíkurgöng.