157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:23]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það hefur mikið verið rætt um að hér sé allt fullfjármagnað og allt komið á hreint. Það er svolítið sérstakt í allri þessari framsetningu, og hér tala ég sem fjárlaganefndarmaður til margra ára, þegar verið er að setja allt á bak við óstofnað félag. Frumvarpið er ekki komið fram, það hefur ekki verið rætt í þinginu, eftirlitið, sem er hlutverk þingsins, hefur ekki farið fram. Það er einhvern veginn lykillinn að öllu að hér sé allt fullfjármagnað, innviðafélagið. Er þetta svona einfalt? Er bara hægt að setja hluti aftur fyrir sig með því að segjast ætla að stofna félag og þar með er umræðan dauð sem snýr að fjármögnun þess sem á að gera? Þetta er kannski það fyrsta sem maður verður var við í þessari umræðu hér í dag sem snýr að gríðarlega mikilvægum málum, grundvallarmálum sem við fáum sjaldan tækifæri til að ræða.

Ég verð að segja að það fennir stundum hratt í sporin. Það er bara eins og þessi þingheimur hafi gleymt hvað gerðist hérna síðustu árin í þessu landi sem byrjaði með falli WOW 2019, það var Covid, stríðið í Úkraínu, jarðhræringar á Reykjanesi. Beinn kostnaður ríkisins var 350 milljarðar á þessum tíma og væntanlega má reikna með að þetta sé öðrum hvorum megin við 600 milljarða. Þetta tók yfir heilu atvinnugreinarnar. Á sama tíma var erfitt að standa í fjárlaganefnd og halda að það væri hægt að gera allt fyrir alla. En það sem var hins vegar afgreitt — það var kosið fyrir ári, ári fyrr en síðasta kjörtímabil átti að enda og við vorum að ræða þetta þá í umhverfis- og samgöngunefnd, við sem þá sátum þar, og í fjárlaganefnd voru gefnar heimildir t.d. fyrir Ölfusárbrú og fyrir ákveðnum hlutum sem sneru að Hornafjarðarfljóti til að klára framkvæmdir. En þessi umræða snýst öll um það að hér eigi að stofna innviðafélag og að allt sé fullfjármagnað, þegar félagið hefur ekki verið stofnað. Það er bara svolítið sérstök nálgun þegar við erum að ræða ríkisfjármál.