samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Ég náði ekki neinni sérstakri spurningu til mín, en varðandi innviðafélagið þá trúi ég ekki öðru en að hv. þingmaður fagni því að þeim áfanga hafi verið náð að samkomulag sé til staðar í ríkisstjórn um það hvernig innviðafélagið verður útfært og frumvarpið er að koma til okkar í næsta mánuði. Það verður þá hér til umfjöllunar og gefst kostur á að ræða það. En við erum hins vegar komin það langt með þetta að frá því verður ekki hvikað. Þetta er vissulega grundvöllur fyrir því að geta farið aftur af stað með stórframkvæmdir sem ég veit að hv. þingmaður vill líka sjá gerast hérna í þessu landi eftir hið mikla framkvæmdastopp sem hefur verið síðustu ár, hver svo sem ástæðan er fyrir því. Ég hvet hv. þingmann til að taka þessu máli með opnum örmum og hjálpa okkur að gera það sem best útfært þegar að því kemur í febrúar.