samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það var nefnilega ýmislegt gert við erfiðar aðstæður og það var ákveðið að fara í framkvæmdir í Covid í marslok 2020 til að reyna að örva atvinnulífið og annað. Það voru svona framkvæmdir til að koma hlutum af stað sem allra fyrst. Það gleymist líka. En í stóru myndinni var gríðarlegt óvissuástand hérna í þinginu á þeim tíma. Í fjármálaáætluninni sem kom 2020 fyrir árin 2021–2025 var gert ráð fyrir 1.000 milljarða halla ríkissjóðs í þeirri áætlun. Það var rosalegt ástand hérna. Þetta er ekki svona einfalt. Það sem ég var að spyrja hv. þingmann var: Er ekki óeðlilegt að tala endalaust um það, hv. þingmaður var ekki alveg að skilja greinilega nálgunina, að eitthvað sé fullfjármagnað — þó að það sé búið að ræða það í ríkisstjórn, ég veit ekkert hvað þar fer fram, ég sit ekki við ríkisstjórnarborðið. Ég sit hérna á Alþingi. Það er eftirlitshlutverk sem Alþingi fer með. Þegar talað er um að eitthvað sé fullfjármagnað þá hef ég ekki hugmynd um það, málið er ekki komið fram. Eftirlit þingsins hefur ekki farið fram. Málið er ekki farið fyrir nefnd og umræðan hefur ekki farið fram í þingsal. Það er einfaldur leikur að tala um að eitthvað sé fullfjármagnað þegar vinnan hefur ekki farið fram á vegum þingsins í tengslum við málið til að fá heildarmynd af málinu. Það er það sem umræðan snýst um og það sem sá sem hér stendur hefur efasemdir um.
Svo ég hafi þetta skýrt og hv. þingmaður geti komið inn á það: Er ekki óeðlilegt að benda alltaf á óstofnað innviðafélag, segja að hlutir séu fjármagnaðir en málið hefur ekki komið fram, hefur ekki verið samþykkt á Alþingi? Við vitum ekkert, við sem hér stöndum og ræðum málin, hvernig er staðið að málinu. Þetta er frekar einfalt, held ég, það sem ég er að reyna að segja í rauninni aftur og aftur. (Forseti hringir.) Þetta er lykilmál þegar verið er að segja að eitthvað sé fullfjármagnað, við höfum bara ekki hugmynd um hvernig á að standa að því.