samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Jens Garðar Helgason fór hér mikinn um forgangsröðun í samgönguáætlun, að hún væri ekki góð. Taldi hann til að 12 af 15 einbreiðum brúm á hringvegi væru í Norðausturkjördæmi. Hann talaði svolítið eins og karlinn í tunglinu ætlaði að fjármagna þetta. Ég spyr hv. þingmann: Hvar ætlar hann að taka peningana til þess að gera allt þetta ef hann vill fá þetta fremst í forgangsröðunina? Öll samgönguáætlun byggir á forgangsröðun. Hún byggir á því að taka einn veg út á undan öðrum, þessa brú á undan þessari brú. Sjónarmið um umferðaröryggi segja að ein brú sé hættulegri en önnur og að meira öryggi sé í því að taka hana út en hina. Hann talaði svolítið, sjálfur Sjálfstæðismaðurinn sem mér skilst að sé á móti skattahækkunum, um þessa forgangsröðun og að gamla brúin yfir Lagarfljót væri bara á tímabilinu 2031–2040 en ekki miklu fyrr o.s.frv. Ég spyr því hv. þingmann: Hvernig á að fjármagna þennan hugmyndafræðilega óskalista sem hann talaði fyrir áðan? Annað varðandi Suðurfjarðaveg: Ég tek undir það sem þar kom fram að það eru mikil vonbrigði að ekki hafi náðst að koma Suðurfjarðavegi framar en við horfum enn á þann möguleika að koma að úrbótum á verkefninu með viðhaldspeningum; við erum enn þá að horfa á það svo að það liggi fyrir. Munurinn á nýjum vegi, þ.e. nýframkvæmdum og viðhaldi á vegi sem liggur fyrir, er svolítið óljós. Við tókum veginn um Stuðlagil fram fyrir. Við mætum stóraukinni umferð við Stuðlagil með bundnu slitlagi á Jökuldalsheiði. Það er nýunnin áætlun og framkvæmdir hefjast 2026 upp á 1.200 millj. kr. á fyrsta tímabili.
Ég fylgdist svolítið með gagnrýni hv. þingmanns á samgönguáætlun þegar ég mælti fyrir henni á blaðamannafundi 3. desember. Þá gat ég ekki heyrt annað en að hann sé á móti því að Fjarðagöng séu í forgangi, í efsta sæti. (Forseti hringir.) Ég spyr hv. þingmann: Hvernig stendur á því að þingmaður frá Eskifirði, þingmaður úr Fjarðabyggð, (Forseti hringir.) sé á móti því að Fjarðagöng séu í forgangi?