157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, ef svar skyldi kalla. Þetta snýst um forgangsröðun, samgönguáætlun snýst um forgangsröðun. Þá er spurningin hvaða jarðgöng eigi að taka fyrst. Eiga það að vera Fjarðarheiðargöng eða Fjarðagöng? Í núgildandi samgönguáætlun frá 2020 eru Fjarðarheiðargöng efst og Fjarðagöng í öðru sæti. Í tillögunni frá 2023 voru Fjarðagöng sett í sjöunda sæti og Fljótagöng í annað. Hv. þingmaður hefur ekki svarað spurningunni um hvers vegna hann sé á móti því að Fjarðagöng séu í fyrsta sæti. Það var litið þannig á í skýrslu frá 2019 að þetta væri ein framkvæmd, þetta væri eitt svæði, hringaksturinn um Fjarðarheiðargöng og Fjarðagöng. Við ætlum að koma á hringtengingu með Fjarðagöngum strax, það er það sem við ætlum okkur því að einhvers staðar verðum við að byrja. Að þingmaðurinn skuli vera á móti Fjarðagöngum finnst mér með hreinum ólíkindum. Hann verður þá a.m.k. að leiðrétta mig hér. Hvað vill þingmaðurinn varðandi forgangsröðun? Það hefur ekki enn þá komið fram. Varðandi þetta með Stokkseyri og Eyrarbakka þá er þetta ekkert sambærilegt. Þetta er bara ekki sambærilegt. Við erum að tengja hérna mikilvægan stað, Seyðisfjörð, svo opna megi á Mjóafjörð fyrir fiskeldi og koma láglendisleið frá Seyðisfirði suður til Reykjavíkur, tengja sjúkrahúsin og stærsta vinnustað landsins.

Varðandi kjördæmapot þá get ég minnt hv. þingmann á það að Fljótagöngin eru líka í kjördæmi hv. þingmanns, í Norðausturkjördæmi, Siglufjörður er þar. Atkvæðin í Fljótunum eru nú ekki mörg, skal ég segja þér. Það sem mig langar hins vegar að segja varðandi færeysku leiðina, af því að hann talar hér fjálglega um Samgöngufélagið Þjóðbraut, er að í Færeyjum búa 50.000 manns. Flatarmál Færeyja er minna en 1,5% af flatarmáli Íslands. Það eru 1.400 km². Það er minna en 1,4% af stærð Íslands. Ísland er 103.000 km². Þeir lærðu vissulega af okkur varðandi Hvalfjörð en allur akstur þar er innanbæjarakstur. Lengsta vegalengdin er 59 km. (Forseti hringir.) Við erum að keyra fleiri hundruð kílómetra. Samanburðurinn við Færeyjar er vissulega góður en stærðarmunurinn er allt annað. Mér þætti bara vænt um að fá að vita (Forseti hringir.) hver forgangsröðun hv. þingmanns er þegar kemur að jarðgöngum.

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar enn og aftur ræðutímann, sem er tvær mínútur.)