157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:49]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans seinna andsvar hérna. Það er alveg greinilegt að hæstv. ráðherra hefur ekki lesið þessa þingsályktunartillögu sem ég lagði fram en það er kannski svo sem ekki fyrsta skýrslan sem hæstv. ráðherra hefur ekki lesið. Það er hins vegar algerlega á hreinu að ef hæstv. ráðherra væri búinn að lesa þessa þingsályktunartillögu — hvað kemur þar fram? Jú, það eru ekki bara jarðgöng sem eru undir, það eru stofnbrautir, það eru brýr. Stór innviðamannvirki, sama hver þau eru, myndu fara að bera gjald. Hér yrðu stórar stofnbrautir sem fólk myndi borga gjald inn á og tekjurnar myndu streyma inn í þetta félag. Ég legg líka til í þessari tillögu að öll göng sem búið er að byggja í dag byrji að innheimta þessi gjöld og að stofnbrautirnar í dag byrji að innheimta þessi gjöld til þess að fara að fá tekjustreymi inn í þetta félag. Á móti myndum við lækka eða jafnvel leggja af vörugjöld á ökutæki og annað sem kæmi á móti. Þetta er ekki aukaskattur í nammibox vinstri manna. Þetta er önnur nálgun á það hvernig við fjármögnum innviðina. Ég skora innilega á ráðherrann að skoða tillöguna og segi enn og aftur: Ég er reiðubúinn að setjast niður með hæstv. ráðherra og raunverulega skoða þessa lausn af því að þetta er lausn sem virkar.

Hæstv. ráðherra talar um að vegakerfið sé lítið í Færeyjum. Já, vissulega, og öll þessi göng fara meira og minna inn í höfuðborgina hjá þeim, Þórshöfn, allt rétt. Þeir eru með miklu færri vegi. Við værum hins vegar líka að taka tekjurnar af stofnbrautunum og stærri mannvirkjum sem myndi þýða allt annað tekjustreymi. Það er líka allt annar fjöldi bíla sem fer um Ísland þannig að svona félag gæti fjármagnað sig með það að leiðarljósi að byggja hér upp innviði. Við verðum að tvöfalda Hvalfjarðargöngin. Við þurfum að fara að byggja göng. (Forseti hringir.) Við eigum að geta verið með mörg verkefni í pípunum í einu.