samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er stór og mikilvægur dagur á Alþingi. Við ræðum nú fyrstu samgönguáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, áætlun fyrir árin 2026–2040. Samgönguáætlun er meðal stærstu og mikilvægustu mála sem við ræðum hér á þingi og því skiptir miklu máli að við vöndum vel til verka. Ég persónulega hlakka til að hlusta á umræðurnar og eiga í góðu samtali við hv. þingmenn um áætlunina.
Það er löngu tímabært að rjúfa kyrrstöðuna og ræsa vélarnar þegar kemur að innviðauppbyggingu á okkar góða landi. Þetta er algjört lykilatriði þegar kemur að lífsgæðum, verðmætasköpun, samkeppnishæfni og öryggi í landinu okkar. Áætlunin er fjármögnuð, sem skiptir miklu máli, og hún er raunsæ og raunhæf. Við vitum öll að vegakerfið okkar er ekki í nægilega góðu standi, sérstaklega í sumum landshlutum. Hvort sem litið er til þjóðvega, tengivega, brúa, ganga, eða öllu heldur skorts á þeim, nú eða hafnarmannvirkja, er farið að sjá verulega á lífæðum samfélagsins vegna innviðaskuldar síðustu ára. En nú er komið að skuldadögum og því hljótum við öll að fagna.
Forseti. Forsenda verðmætasköpunar og áframhaldandi öflugra lífsgæða á Íslandi eru að innviðir séu í lagi. Það liggja tækifæri á hverju strái en það sem stendur okkur helst fyrir þrifum eru innviðirnir, hvort sem litið er til samgangna eða raforkumála. Ég þekki það vel sem Vestfirðingur hvernig það er að alast upp við ótryggar samgöngur. Það að skoða umferðin.is er daglegur veruleiki fólks sem býr á landsbyggðinni við ótryggar aðstæður. Ég ætla að leyfa mér að efast stórlega um að það sé fyrsta síðan sem Reykvíkingar fletta upp á morgnana, með fullri virðingu fyrir þeirri mikilvægu upplýsingasíðu, en þetta er hluti af daglegu lífi margra Íslendinga sem þurfa að fara hættulegar vegalengdir á hverjum degi til að sækja atvinnu eða skóla. Þetta er daglegt líf þar sem margir hætta sér jafnvel ekki einu sinni út í búð eða að fara í einhverjar tómstundir eða sækja viðburði vegna þess að það er ekki öruggt. Þetta er eitthvað sem fólkið á suðvesturhorninu tekur yfirleitt sem sjálfsögðum hlut þar sem veður og færð eru alla jafna ekki stórmál. Það koma auðvitað dagar þar sem færðin er ekki góð en það er ekki kannski daglegur veruleiki fólks svona yfir vetrartímann. Það að tryggja vetrarþjónustu, örugga vegi og að bora fleiri jarðgöng er því ákveðin forsenda þess að byggja áfram upp tækifæri um allt land, að fólk finni fyrir öryggi í heimabyggð sem ýtir enn frekar undir dreifða búsetu og byggðafestu.
Forseti. Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar er fjármögnuð. Án þess væri áætlunin bara einhvers konar óskalisti, sem er auðvitað alveg fínt til síns brúks en ekki meira en það. Það er ábyrgðarhluti að koma hér með raunhæft plan og gera ráð fyrir því í fjármálaáætlun og í fjárlögum, eitthvað sem hægt er að standa við. Það verður farið í löngu tímabært viðhald á vegum landsins og einnig í nýframkvæmdir. Það verður farið í að byggja upp stoðkerfið vegna þess að kyrrstaða í jarðgöngum verður einnig rofin. Við ætlum að stórauka viðhald í vegakerfinu, auka framlag úr 12–13 milljörðum árlega í 17,5 milljarða strax á þessu ári og svo í 20 milljarða á ári frá árinu 2027. Við erum að tala um 605 km af bundnu slitlagi sem nú eru malarvegir, markvissari nýtingu fjár í hafnarframkvæmdir, áfram á að halda þeirri vegferð að útrýma einbreiðum brúm á hringveginum og auka öryggi, spýta í vetrarþjónustuna og auka þar um tæpa 14 milljarða frá fyrri áætlun. Allt þetta telur.
Forseti. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að samgöngur séu öruggar, greiðar og hagkvæmar og umhverfislega sjálfbærar. Markmiðið er að draga úr slysum í umferðinni og bæta um leið almenningssamgöngur. Við verðum að verja stofnvegi okkar og tryggja að þeir standist náttúruvá eða aðrar loftslagsáskoranir. Samgöngur eiga að styðja við byggðaþróun og byggðafestu um land allt þannig að fólk hafi raunverulegt valfrelsi til að kjósa hvar það býr og geta unnið um land allt án þess að finna stöðugt fyrir ótta eða óöryggi. Það er mikilvægt að boða hér heildarsýn um það hvernig við byggjum upp samgöngukerfi sem styður við byggðafestu, atvinnulíf, umhverfið og samfélagið allt.
Forseti. Ég veit að það ríkir ákveðin tortryggni í garð verka ríkisstjórnarinnar þegar kemur að boðaðri innviðauppbyggingu og ég skil þessa tortryggni, m.a. vegna þess að fólk hefur beðið áratugum saman eftir nauðsynlegum úrbótum. Það er skiljanlegt. Við höfum upplifað kyrrstöðu of lengi en ríkisstjórnin ætlar að forgangsraða fjármunum í að greiða niður innviðaskuld; tryggja að vegirnir okkar, brýrnar, hafnirnar og flugvellirnir haldi gæðastigi og að farið verði í stórframkvæmdir. Þetta getur raunverulega umbylt lífsgæðum okkar og tilveru.
Ríkisstjórnin hefur einnig boðað stofnun innviðafélags sem mun einfalda fjármögnun á stórframkvæmdum til muna. Það verður loks mögulegt að ráðast í framkvæmdir sem eru þjóðhagslega mikilvægar. Samgönguáætlun er því ekki aðeins áætlun, fjölmargar blaðsíður af áformum, heldur raunverulegt plan um framkvæmdir. Með innviðafélagi er langtímafjármögnun tryggð. Stjórnmálin eru full af freistnivanda sem afmarkast oft af kjörtímabilum og ég held að það sé hollt fyrir okkur að líta til lengri tíma. Með innviðafélaginu verður hægt að setja á laggirnar verkefni sem taka lengri tíma, verkefni sem að mínu mati hafa því miður allt of oft mætt afgangi. Við þurfum að hugsa til lengri tíma og þessi áætlun er sannarlega liður í því samhliða stofnun innviðafélags.
Fyrir mig sem þingmann Norðvesturkjördæmis þá gleðst ég innilega yfir þeim viðsnúningi sem er að eiga sér stað milli áætlana fyrir alla landshluta kjördæmisins. Ég get nefnt Fljótagöng, Súðavíkurgöng, Mikladal og Hálfdán í forgang. Ég gæti síðan nefnt Bíldudalsveginn, Dynjandisheiðina, Gufudal, Vatnsnes, Flateyrarveg, Veiðileysuháls, Skógarströndina, hringveginn um Borgarnes, Kjalarnes, Uxahryggjaveg, Akranesveg og svo auðvitað Sundabrautina, svo dæmi séu tekin. Öll höfum við skoðanir á því hvenær tímabært sé að fara í framkvæmdirnar og auðvitað myndi maður vilja sjá sumt fara fyrr af stað, líkt og í mörgum öðrum landshlutum, en það verður að verkefnum sem nefndin þarf að takast á við nú.
Það er annað sem ég fagna mjög og hefur kannski ekki mikið verið rætt hér í dag. Það eru fjarskiptin og farnetsambandið á öllum stofn- og tengivegum sem boðað er í þessari áætlun. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Við þekkjum það flest sem keyrum um þessa vegi mjög reglulega að maður er farinn að þekkja nákvæmlega á hvaða tímapunkti maður getur tekið símtal og á hvaða tímapunktum símtalið slitnar. Ég átti um daginn mjög kómískt samband við vin minn sem var að keyra Djúpveginn og ég var að fara suðurleiðina vestur. Við hringdumst á í klukkutíma þar sem slitnaði hjá okkur á víxl og við hættum við þessi áform eftir smástund og ákváðum að heyrast seinna vegna þess að sagan sem við vorum að segja var mjög áhugaverð en við gáfumst upp að lokum. En þetta er auðvitað ekki bara kómískt, þetta er líka mikið öryggismál. Árið er 2026 og það er löngu orðið tímabært að það sé farsímasamband á öllum stofnvegum landsins. Þetta er gríðarlegt öryggismál og sömuleiðis liður í því að tryggja byggðafestu um land allt og jöfn tækifæri.
Það sem liggur að baki áætluninni er ábyrg fjármálastjórn. Svona áætlun krefst aga þegar kemur að fjármögnun, skipulagningu og verkefnastjórnun. Við þingmenn berum öll ábyrgð á því að fylgja henni eftir í okkar störfum.
Frú forseti. Ég hlakka til að takast á við þetta gríðarstóra verkefni í umhverfis- og samgöngunefnd ásamt okkar góðu félögum í meiri hlutanum og í minni hlutanum. Nú fær áætlunin þinglega meðferð og ég er handviss um að þar fái hún góða og málefnalega umfjöllun. Það er eðli máls að áætlunin veki mismunandi viðbrögð um land allt en ég hlakka hið minnsta til samtalsins og samstarfsins.