samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir ræðuna. Mig langar til að spyrja hana aðeins út í það sem kom fram í hennar ræðu. Mér fannst reyndar um tíma eins og ég væri að heyra aftur lesið upp úr stjórnarsáttmálanum og auðvitað er það þannig að þegar verið var að ganga frá stjórnarsáttmálanum voru háleit markmið um hvernig menn ætluðu að breyta öllu varðandi samgöngurnar og jafnvel hvernig menn ætluðu að fjármagna það. Kannski er rétt að minna hv. þingmann á það að það var ákveðið að veiðigjöldin myndu hjálpa verulega til hvað það varðaði. Því langar mig til að heyra afstöðu hv. þingmanns varðandi það hver niðurstaðan virðist vera úr þeirri upphæð sem okkur sýnist að muni skila sér í samgönguáætlun miðað við þær forsendur sem voru alla vega gefnar varðandi fjárlögin.
Svo er eitt atriði sem varðar okkar kjördæmi. Við erum bæði í Norðvesturkjördæmi og mig langar til þess að forvitnast um þetta atriði af því að ég sé það ekki í samgönguáætluninni, en það varðar ferjur. Í okkar kjördæmi erum við með mikilvægan samgönguþátt í ferjunni Baldri sem fer á milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Hún skiptir verulegu máli. Sér þingmaðurinn þess stað í þessari áætlun að það verði yfirleitt eitthvað unnið hvað varðar ferjuna, alla vega á þessu kjörtímabili?