samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið og ég hlakka sömuleiðis mikið til samstarfs við hann í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Fyrst varðandi ferjurnar, þá minnist ég þess að hafa séð eitthvað um ferjur í áætluninni. Ég ætla bara að fá að skoða það betur og er klárlega til samtals um það efni. Hins vegar varðandi það hvernig við greiðum fyrir vegasamgöngur og hvernig hlutirnir skila sér inn í kjördæmið, þá er það nú svo, eins og hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra, að meginþorrinn fer í viðhald á vegum. Við sem þekkjum vel til ástandsins sem hefur verið bæði á Snæfellsnesinu, við Búðardal og á Vesturlandi almennt vitum að nú þegar hefur verið sett töluvert viðbótarfé í viðhald á vegum og það verður gert áfram. Við þurfum að fylgja því mjög fast eftir að við það verði staðið vegna þess að að það ástand sem skapaðist hér, t.d. í fyrra, má ekki endurtaka sig, þegar við vorum t.d. með marga daga af bikblæðingum og marga vegi sem voru hreinlega ónýtir. Það er því eitt að fara í nýframkvæmdir og annað að tryggja viðhald á þeim vegum sem við höfum þó byggt upp. Ég sé að í áformum hér er talað um að framlag til viðhalds á vegum 2026, strax á þessu ári, fari úr 12–13 milljörðum kr. á ári í 17,5 milljarða. Frá árinu 2027 á framlagið svo að fara upp í 20 milljarða kr. á ári. Þetta er því stóraukið viðhald og þetta telur allt saman.