samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og vil nefna að þeir milljarðar sem notaðir voru í viðhald hér í vor og sumar voru sannarlega vel þegnir þótt maður hafi jafnvel verið orðinn úrkula vonar um að þeir myndu hreinlega nýtast af því okkur gekk svo illa að koma málum í gegnum þingið. Ég ætla að ítreka spurningu mína við þingmanninn hvort það líti eins vel út með fjármögnun á þessum verkefnum og gert var ráð fyrir ef við horfum t.d. til þess að veiðigjöldin muni ekki skila því sem áætlað var í viðhald vega og jafnvel fjarri því markmiði sem manni alla vega sýndist hafa verið sett. Hvar ætlar ríkisstjórnin þá að ná í þá fjármuni?