samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans síðara andsvar. Það er nú þannig að áformað veiðigjald t.d. á þessu ári lækkaði vegna þess að við komum til móts við sjónarmið lítilla og meðalstórra fyrirtækja þegar við vorum að afgreiða veiðigjöldin, með því að þrepaskipta því hvernig þau voru innleidd. Að sjálfsögðu hefur það áhrif en ég sé það samt hér í þeim áætlunum sem lagðar eru fram að það verður farið í þær framkvæmdir sem ég er helst að horfa til. Auðvitað er þessi vinna bara að byrja núna og við erum á fyrsta degi umræðu. Ég hef haft mjög gott af því að koma hér inn í dag, ég er auðvitað ný í nefndinni og er að nótera hjá mér alls konar hluti sem við þurfum að horfa vel til í nefndarvinnunni. Þetta er eitt af þeim atriðum sem við skulum bara gaumgæfa vel og ég treysti mér vel til þess.