157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:14]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að hafa fengið að heyra hérna loksins orðin: Ræsa vélarnar. Ég hélt að ríkisstjórnin væri aðeins að gleyma sér í umræðunni og því er gott að hv. þm. María Rut Kristinsdóttir minnti á slagorðin. Það er annað orð sem hv. þingmaður hefur notað mikið og ritaði nú snemma á kjörtímabilinu grein um, þ.e. innviðaskuldina, sem er kannski meira rætt um sem viðhaldsskuld. Mig langaði aðeins að ræða við hana um þetta þar sem það snertir sérstaklega hennar kjördæmi, ef við skoðum kannski bara tölurnar í því. Öll held ég að við séum sammála um að það þurfi náttúrlega að ganga í brýnt viðhald á mörgum vegarköflum hér á landi. Vegagerðin er búin að meta viðhaldsskuldina upp á 180 milljarða og það eiga að fara í þetta 17–20 milljarðar. Það er það sem ríkisstjórnin ætlar núna að setja í þetta á næstu árum. Því langar mig að spyrja hv. þingmann, þar sem skuldin er náttúrlega orðin ansi stór: Er verið að setja nóg í þetta til þess að vinna skuldina niður? Ég spyr sérstaklega þar sem hún hefur rætt mikið um þessa viðhaldsskuld. Ef við myndum bara halda okkur við töluna 20, miðað við þessa mögnuðu og fullfjármögnuðu samgönguáætlun, þá erum við að tala um einhverja 100 milljarða á meðan viðhaldsskuldin er 180 milljarðar. Þá ertu áfram svolítið að ýta vandamálunum frá þér, það er smá svona frestunarárátta ef þú ert ekki að setja nóg í þetta. Er kannski spennan aðeins of mikil við að fara í nýjar framkvæmdir, t.d. með þessu innviðafélagi? Ég átta mig á því að það þarf að sjálfsögðu að fara í eitthvað nýtt líka, það er ekki hægt að greiða þetta allt niður í einu. Af því að við erum hins vegar að tala núna um þessi fyrstu fimm ár, ef við ætlum að halda okkur við fyrstu fimm árin, þ.e. tímaramma þessarar fullfjármögnuðu áætlunar eins og við skulum kalla hana, er t.d. til einhver mælanleg áætlun um niðurgreiðslu þessarar viðhaldsskuldar, t.d. markmið um lækkun þessarar 180 milljarða viðhaldsskuldar fyrir 2030? Gengur þessi stærðfræði í raun og veru upp?