157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:18]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega fyrir svarið. Ég ítreka að ég var náttúrlega fyrst og fremst að tala um viðhaldsskuldina, ég veit að innviðaskuldin er kannski töluvert stærri og að sjálfsögðu er ekki hægt að þurrka þetta allt saman út í einu, þótt ég hefði nú kannski verið til í örlítið skýrara svar um hvernig þetta ætti að fara. Ég er ekki að kaupa þessa orðræðu, mér finnst hún bara ekki rétt. Ég veit að stjórnarliðar eru alveg á þessari línu og við munum væntanlega halda áfram að karpa um þetta og líka fram í síðari umræðu. Þessi fullfjármagnaða, þetta orð — nú er ríkisstjórnin að leggja fram samgönguáætlun sem er geigvænlega mikilvægt verkefni þar sem við erum í grunninn öll sammála um heildar- og meginmarkmiðin með þessu öllu saman. En það má ekki og mér finnst bara verið, frú forseti, að slá ryki í augu fólksins í landinu með því að segja að þetta sé fullfjármagnað. Það er aldrei neitt útskýrt. Fyrst er bara sagt fullfjármagnað og svo þegar er gengið á stjórnarliða og hæstv. ráðherra er þetta allt í einu orðið bara þessi fimm ár sem eru í fjármálaáætlun, þrátt fyrir að það hafi ekki verið útskýrt á sínum tíma. En gott og vel. Lykilatriðið í þessu er innviðafélagið sem hefur verið rætt hérna aðeins í síðustu ræðum og andsvörum. Hæstv. innviðaráðherra sagði hér rétt áðan í andsvari við þann sem hér stendur að þetta væri bara fyrirheit um áætlun og fyrirheit um fulla fjármögnun, sem þetta er. Þetta er bara fyrirheit um fulla fjármögnun. Það er vonast til þess að innviðafélagið geti mætt þeim kröfum um fjármagn sem það á að mæta til þess að þetta gangi upp og verði full fjármögnun. En þetta er rosalega mikið „ef og hefði“. Mig langaði að spyrja hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur hvort henni finnist þessi orðræða í alvörunni í lagi, að vera alltaf að tala um fulla fjármögnun. Það er alltaf bara sagt full fjármögnun en aldrei neitt útskýrt af þessu sem ég var að segja núna og (Forseti hringir.) það liggur í hlutarins eðli að þetta innviðafélag — það er ekki einu sinni komið lagafrumvarp um það. (Forseti hringir.) Hvernig getum við talað um fullfjármagnaða samgönguáætlun byggða á innviðafélagi sem er ekki búið að leggja fram?