samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir hennar innslag hérna og hennar ræðu og býð hana velkomna í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég held að það verði mikil vinna fyrir höndum fyrir nefndina að reyna að skipuleggja allar þær gestakomur sem eru núna fram undan hjá nefndinni, að senda í fyrsta lagi áætlunina í umsagnarferli og kalla svo alla til fundar við nefndina og gefa fólki góðan tíma til að fara yfir sín mál. Fyrir mörg sveitarfélög og hagsmunaaðila, ekki síst sveitarfélögin, og aðra skiptir þetta gríðarlegu máli. Samgöngumálin eru eitt af stóru málunum hjá sveitarfélögunum og landsvæðasamtökum og öðrum.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum frá því að þessi frægi blaðamannafundur var haldinn hér í byrjun desember að það hafa verið mjög skiptar skoðanir um breytta forgangsröðun í jarðgangamálum í þessari samgönguáætlun. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála þeirri forgangsröðun sem er sett upp núna í jarðgangamálum eða hvort hún sé jafnvel sammála flokksbróður sínum, hv. þm. Ingvari Þóroddssyni, sem hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með það hvernig forgangsröðuninni var breytt. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hún sammála þeirri forgangsröðun sem sett er fram hér af hæstv. ráðherra? Telur hún jafnvel að í meðförum nefndarinnar væri hægt að gera einhverjar breytingar á þeirri forgangsröðun sem boðuð er?