157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:24]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið. Í einlægni minni skil ég mjög vel að hér munu landshlutar koma fram með sín sjónarmið og hafa mjög ólík sjónarmið þegar kemur að þessari forgangsröðun, þó það nú væri. Þannig hefði það líklega orðið sama hvernig röðunin hefði verið sett upp. Það eru alltaf einhverjir sem hafa skoðun á því hvað á að vera í fyrsta sæti, hvað á að vera í öðru sæti, hvað á að vera í þriðja sæti. Ég ætla ekki að úttala mig um það á þessu stigi kannski hvernig við munum vinna þetta í nefndinni. Ég ætla að fá að leyfa mér að taka þessa umræðu þannig að við tökum hér fyrri umræðu og ræðum um kosti og galla og allar forsendur og höfum allt á borðinu. Svo fer málið í þinglega meðferð. Þar gefst fólki tækifæri á að senda inn umsagnir og eðli málsins samkvæmt þá tökum við á móti gestum og hlustum á sjónarmið og eftir að því lýkur þá tölum við um hvernig málið horfir við okkur. Ég hef góða reynslu af því að vinna með mjög flókin mál hér á Alþingi þrátt fyrir að hafa setið hér aðeins í eitt ár. Ég ætla bara að leyfa mér að taka þann tíma sem þarf núna til að hafa vaðið fyrir neðan okkur og ekki fara í þetta karp á milli landshluta og væntingarstýra málunum þannig.