samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir hennar svar, hún kom sér svo sem fimlega hjá því að svara spurningunni en það er allt í lagi, ég mun ekki kvelja hv. þingmann meira á því. Ég lít svo á að svar hv. þingmanns hafi a.m.k. opnað þann glugga að hægt sé að gera breytingar á samgönguáætlun í meðförum þingsins, enda kemur samgönguáætlun frá ráðherra en það er þingheimur sem ræður síðan endanlegri afurð, ekki hæstv. ráðherra.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í Hafnabótasjóð. Það tengist náttúrlega ekki síður minni höfnum, sérstaklega á Norðvesturlandi, í hennar heimakjördæmi. Telur hún ekki að eitt af því sem þurfi að skoða sé þessi breyting að fara að láta hafnirnar borga núna 60% í stað 40%? Það mun sérstaklega og ekki síst koma við margar minni hafnir á Vesturlandi og Vestfjörðum og jafnvel á Norðvesturlandi (Forseti hringir.) sem falla einmitt undir þetta og munu þurfa að sitja uppi með stærri reikning. Er þetta ekki eitthvað sem við þurfum að skoða og ræða?