samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans góðu yfirferð hér. Ég veit að hann hefði getað talað hér fjórum sinnum lengur. Okkur þingmönnum sem viljum ræða samgöngumál er þröngt sniðinn stakkurinn. Nú erum við báðir úr Norðausturkjördæmi. Hann fór vel yfir í rauninni hvernig Austfirðingar hafa verið sniðgengnir og ekki nóg með það, því er síðan slegið fram að það eigi að byggja 800 millj. kr. hringtorg sem, alveg eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson kom inn á, tengist einmitt jarðgangagerð um Fjarðarheiði. En látum það liggja milli hluta. Það er nú eiginlega bara hálfkómískt allt saman. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann deili ekki áhyggjum mínum yfir því hvað mikilvægar brýr í kjördæminu eru aftarlega á tímabilinu, í rauninni eftir jafnvel 10–15 ár. Brýr sem eru orðnar að flöskuhálsum í samgöngum, atvinnuuppbyggingu og þungaflutningum, bæði innan kjördæmis og síðan út úr kjördæminu. Er hann ekki sammála mér að þetta sé mjög alvarlegt og verði að taka til endurskoðunar í nefndinni?