samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðisspurningar. Stutta svarið er: Jú, ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni. Ég hef gengið svo langt á köflum að tala um að þar sé í raun og veru verið að gera Austurland að eylandi. Þessar brýr sem um ræðir eru þó nokkrar, þetta er til að mynda brúin við Fosshól, Jökulsá á Fjöllum, Fljótsbrúin og svo kemur þetta sunnan megin frá líka, sama vandamálið. Við erum í raun og veru að draga hring utan um Austurland og segja við þá: Þið eruð bara ekkert með í samgöngukerfinu okkar. Á sama tíma er Austurland er að leggja til öll þessi útflutningsverðmæti sem krefjast mikilla flutninga bæði að og frá. Þess vegna eru þetta mikil vonbrigði því að ég taldi okkur sem samfélag vera löngu komin á þann stað að fresta ekki til að mynda brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum lengur. Ég geri mér grein fyrir því að brúin hérna á Egilsstöðum — sem hefði átt að fá að brenna, held ég, á sínum tíma — það eru einhverjar skiptar skoðanir um nýtt brúarstæði þar. Auðvitað með því að setja kraft í þá vinnu hefði verið hægt að leysa það. En ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er eitthvað sem þarf að leysast hraðar, miklu hraðar en gert er ráð fyrir í þessari samgönguáætlun.