samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður hefur nú komið inn á það svo sem um þessa margumtöluðu, fullfjármögnuðu samgönguáætlun. Þetta hefur alltaf minnt mig svolítið á atriði úr einni ágætri grínmynd sem ég man eftir þegar það er alltaf verið að tala um að þetta sé fullfjármagnað og svo kemur hæstv. ráðherra og segir að þetta séu vilyrði. Þetta séu sem sagt væntingar um eitthvað. Það á náttúrulega eftir að stofna innviðafélagið og annað. Þetta minnir mig alltaf svolítið á atriðið úr kvikmyndinni Dumb and Dumber, þegar félagarnir fylltu skjalatöskurnar af „IOU“-miðum og sögðu síðan: Þetta eru allt vilyrði um að eitthvað verði borgað í framtíðinni. Við vitum hvernig það fór. Þetta hefur minnt mig á það. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Finnst honum þessi orðræða um fullfjármagnaða samgönguáætlun ekki orðin svolítið hjákátleg, sem síðan er verið að bakka með og reyna að útfæra eftir því hvernig hentar?