samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Hér gætir mikils misskilnings. Ég vona að sá misskilningur sé óviljandi og að ekki sé verið að misskilja mig viljandi til að búa til einhverja mynd. Ég hafði akkúrat engar væntingar, hv. þingmaður, um það að veiðigjöldin, vörugjöldin, kílómetraskatturinn eða hvaða aðrir skattar það voru sem ég barðist hér gegn fyrir jólin myndu verða til þess að það yrði ekki haldið áfram með hækkanir. Ég hafði þær ekki. Ég sagði það í ræðu eftir ræðu hér, hv. þingmaður, að það væri ríkisstjórnin sem hefði þessar væntingar. Þess vegna, hv. þingmaður, skil ég ekki þessa nálgun því mér fannst gefið til kynna þá að þetta væru þær framkvæmdir sem þyrfti að fara í til að þurfa ekki að leggja meira á fólk, þ.e. veiðigjöldin, vörugjöldin og kílómetraskatturinn, fyrst og fremst. Vissulega voru mun fleiri skattahækkanir á ferðinni hér fyrir jól. Hér ætla ég því að vona, hv. þingmaður, að um misskilning sé að ræða. Ég þekki ekki hv. þingmann að því að leggja samþingmönnum sínum í sal orð í munn. Ég trúi því þess vegna að þetta sé misskilningur.
Svo að seinni spurningunni sé svarað hef ég ekki barist gegn því að við nýframkvæmdir til að mynda, og ekki síst þar sem fleiri en ein leið er möguleg, sé rukkað fyrir afnot. Þetta er kallað færeyska leiðin en hún er auðvitað ekkert færeysk, hún er íslensk og heitir Spölur. Ég hef varla keyrt Víkurskarðið síðan Vaðlaheiðargöngin komu, kannski tvisvar, þrisvar og þá hef ég bara verið að koma frá Grenivík og þótt óþarflega langt að fara inn allan fjörð til að komast í göngin. Hér er því einhver misskilningur, hv. þingmaður.