157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:50]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir sitt svar. Það er gott að heyra að við séum í rauninni sammála um að eðlilegt sé að innheimta veggjöld til að liðka fyrir nýframkvæmdum í vegakerfinu þó að við séum ekki að leggja til að ganga jafn langt í að innheimta veggjöld á öll göng og allar stofnbrautir strax líkt og í tillögu sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks alla vega hafa lagt hér fram.

Mig langaði að nýta þennan stutta tíma sem ég á eftir til að spyrja út í annan hlut sem kom fram í máli þingmannsins og það sneri að því að það voru gerðar ákveðnar athugasemdir um að ný ríkisstjórn væri að breyta forgangsröðun samgönguáætlunar og væri einhvern veginn að grafa undan því trausti sem samgönguáætlun hefur. Mig langar þá að spyrja: Telur hv. þingmaður að þegar ný ríkisstjórn tekur við, þá sé hún bundin 15 ár fram í tímann af ákvörðunum fyrri ríkisstjórnar? Telur hv. þingmaður að það sé eðlilegt fyrirkomulag að eftir næstu kosningar, ef hér verður ný ríkisstjórn, verði sú ríkisstjórn bundin af 15 ára samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar? Er ekki eðlilegt að lögð sé fram 15 ára áætlun (Forseti hringir.) til að sýna á spilin inn í framtíðina og að það sé svo að sjálfsögðu stjórnvalda hvers tíma að bera pólitíska ábyrgð (Forseti hringir.) á sinni forgangsröðun?