samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Þetta hafa verið áhugaverðar umræður hér í dag og hafa eðlilega fjallað mikið um það sem að hverjum hv. þingmanni snýr. Ég vona að hæstv. ráðherra taki þátt í samræðunni hérna sem ég var búinn að biðja hæstv. ráðherra að gera. Það sem ég ætla að ræða hér hefur kannski ekki verið rætt mikið í dag en er mjög svo mikilvægt og það snýr að samgöngum í mínu kjördæmi, sem er Reykjavík.
Það sem vekur athygli mína þegar ég skoða þetta er t.d. að þegar kemur að kaflanum Markmið um greiðar samgöngur er ekkert minnst á innanlandsflugið. Mér finnst það svolítið sérstakt, virðulegi forseti, að við séum ekki með nein markmið sem að því snýr, þ.e. að innanlandsfluginu. Innanlandsflugið er eitthvað sem er mjög mikilvægt núna. Það er ekki gert ráð fyrir neinni aukningu í því, ef ég skil þessar töflur hér rétt. Mér finnst ekki vera mikil sýn eða metnaður þegar kemur að því. Það er vissulega talað um flugstöð og að það eigi að fara að hanna hana en það er ekkert talað um fjármögnun, og þá er ég að tala um Reykjavíkurflugvöll. Það er ótrúlega lítið þegar að þeim málum kemur. Það er líka talað hér um lækkun framlags til rekstrar á ferjum og ýmislegt sem væri áhugavert að fá svör við og ræða en þetta er í rauninni svolítið stutt umræða hjá okkur. Þegar kemur að risamálum og langstærstu hlutunum í þessu, sem eru samgöngusáttmálinn og Sundabraut, þá skila menn eiginlega bara auðu.
Virðulegur forseti. Ætlum við ekkert að ræða þetta hér? Þetta eru fjárfestingar upp á hundruð milljarða. Nú geta menn haft allar skoðanir á þessu en ég held hins vegar að það væru meiri líkur á að við næðum góðri niðurstöðu ef menn myndu ræða þessa hluti. Þetta byrjar hér á bls.102, með leyfi forseta, það er ekkert um þetta á bls. 103, það er tafla á bls. 104 og svo er ein málsgrein á bls. 105.
Virðulegur forseti. Bíddu, er þetta svo að við séum hér með fjárfestingar sem snerta alla landsmenn, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík, og við ætlum ekkert að ræða þetta? Ég er með spurningar til hæstv. ráðherra og ég er búinn að biðja um sérstaka umræðu við hann um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu síðan þessi ríkisstjórn tók við og enn þá hefur hann ekki orðið við því. Ég get ekki séð að þessar forsendur gangi upp. Miðað við það sem ég er búinn að skoða, ég er t.d. búinn að heimsækja Betri samgöngur og hvað þetta er allt saman, get ég ekki annað séð en að við séum að setja gríðarlega háar fjárhæðir í þetta og að það muni enda í ógöngum.
Dæmi: Menn ætla að setja stokka upp á tugi milljarða við Sæbrautina án þess að auka umferðarrýmdina. Með öðrum orðum, það á að setja upp fjárfestingar um 40 milljarða, eitthvað slíkt, en það á ekki að vera auðveldara að komast til eða frá. Þetta tengist auðvitað Sundabrautinni sem ég fer aðeins í á eftir. Hvernig má það vera árið 2040, vegna þess að Sæbrautin er full núna, þá ætli menn að vera búnir að fara í allar þessar framkvæmdir, ótrúlega dýrar framkvæmdir? Forsvarsmenn segja að það verði ekkert vandamál að keyra þetta á þessum tíma. Maður spyr: Hvernig má það vera? Með fjölgun íbúa, Sundabrautin á að koma þarna inn á, hvernig má það vera? Þá er fullyrt að það eigi jafn margir að fara með borgarlínunni og á Sæbrautinni. Þessi svör fékk ég ekki hérna í þinginu heldur á kynningarfundi með starfsmönnum borgarinnar um Sundabrautina.
Ég spyr: Trúir þessu einhver í alvörunni? Ég vek athygli á því að menn ætla að læða hlutum í gegn, án þess að ræða þá, t.d. á að fjármagna m.a. þennan samgöngusáttmála með því að koma með gölnustu hugmyndir um íbúaðaruppbyggingu á einum stað í borginni í Keldnalandinu. Þær eru fullkomlega galnar. Þetta gengur allt út á þessa sturluðu hugmynd að það sé einhvern veginn hægt að neyða fólk til að fara í almenningssamgöngur. Hvernig á að gera það? Það er verið að skipuleggja hverfi þar sem fólk fær hugsanlega ekki bílastæði, ekki eitt fyrir húsið, ekki eitt. Það eiga að vera nokkur hundruð metrar fyrir fólk að fara í bílinn ef þú færð bílastæði.
Virðulegi forseti. Nú hef ég alið upp börn og reyndar eignast tvíbura. Ég hefði ekki viljað ganga með tvíburana og innkaupapokana nokkur hundruð metra í bílinn eða úr bílnum yfir vetur. Þetta ætla menn að gera í nafni samgöngusáttmálans og ekki ræða það. Við förum með fjárveitingavaldið, við erum að ákveða hvert peningarnir fara, hvernig hlutirnir eru fjármagnaðir. Hér er enginn hæstv. ráðherra þó að ég væri búinn að biðja um að hann yrði hérna til að taka þessa umræðu. Ég er búinn að biðja um sérstaka umræðu um þetta núna frá því að ríkisstjórnin tók við. Borgarbúar, almenningur og skattgreiðendur eiga rétt á því að það sé rætt um þessi mál af kjörnum fulltrúum sem bera ábyrgð á þeim.
Virðulegi forseti. Menn eru líka að fara af stað með Sundabrautina með nákvæmlega sömu hugmyndir og fyrir 30 árum síðan. Það hefur oft stoppað vegna þess að það koma alltaf sömu athugasemdirnar. Ég er búinn að vekja athygli á þessu í nokkur ár, ganga á milli Pontíusar Pílatusar og Heródesar innan allra kerfanna og benda á að þetta muni hafa vandræði í för með sér sem allir geta séð sem eru með skynfærin í lagi. Ætla menn, virðulegi forseti, að hafa í samgöngusáttmálanum eina, tvær setningar um Sundabrautina og ekki ræða þessi mál hér? Er það svo að hæstv. ráðherra ætlar ekki að taka þessa umræðu hér? Er það svo?
Virðulegur forseti. Það getur alveg verið að stundum falli mál milli skips og bryggju. Þau eru ekki það stór, það er ekki gott. En hér erum við að tala um lang, langstærstu fjárfestingar í samgöngumannvirkjum sem Ísland hefur farið í. Ég hvet hv. þingmenn og alla aðra að lesa hvað stendur um þetta í þessari samgönguáætlun.
Virðulegi forseti. Af því að ég hef bara tíu mínútur hér get ég ekki farið nákvæmlega í alla þessa þætti. Ég vildi gjarnan gera það og hafa tækifæri til þess. En allar þær áhyggjur sem ég hafði komu fram á kynningarfundunum sem hundruð manna mættu á. Ein athugasemdin sem kom fram á 300 manna fundi í Grafarvogi var að menn hefðu áhyggjur af því að það ætti að fjórfalda Hallsveg. Þar var sagt: Það verður aldrei. Hann verður ekki fjórfaldaður. Núna var verið að kynna hverfið í Úlfarsárdal sem á að bjarga húsnæðismálunum á Íslandi. Förum ekki í það hversu galnar þær hugmyndir eru, þéttasta hverfi á byggðu bóli. Nei, nei. Þar er kynnt sérstaklega að það eigi að fjórfalda Hallsveginn. Það á að fjórfalda hann nokkrum vikum eftir að því var lofað að það yrði ekki gert.
Virðulegur forseti. Er það þannig að við ætlum að taka þessi risamál og ræða þau ekki neitt? Þetta er ekki milljón, þetta eru ekki 10 milljónir, þetta eru ekki 100 milljónir, þetta eru nokkur hundruð milljarðar. Hér er ekki einu sinni hæstv. ráðherra þó að ég biðji hann sérstaklega að vera hér til að taka þessa umræðu. Ég veit að nú er verið að fara að slá í bjölluna því maður hefur skitnar tíu mínútur hér.
Virðulegi forseti. Það er ekki ábyrgt af hv. Alþingi að vinna að málum með þessum hætti og því síður, virðulegur forseti, framkvæmdarvaldinu.
(Forseti (BHar): Það upplýstist að hæstv. ráðherra hefur verið kunngjört um að hans sé óskað hér í þingsal en ég skil það sem svo að hæstv. ráðherra sé hér í Skála í viðtali við sjónvarpsstöð.)