157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:12]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég tek undir með honum að þetta er allt of stuttur tími til að ræða svona viðamikið mál. Þetta er viðamikið plagg en innihaldið er þunnt, ég tek fullkomlega undir það. Þingmaðurinn ræddi talsvert um samgöngusáttmálann og það er alveg rétt hjá honum að þetta nær ekki einu sinni einni blaðsíðu, umfjöllunin um hann í plagginu. Þetta er því ekki efnismikið, ég myndi segja að þetta væri mjög efnisrýrt.

Þingmaðurinn ræddi um Sundabraut sem er að sjálfsögðu löngu orðin tímabær. Mig langar að spyrja þingmanninn, þar sem annars vegar hefur verið rætt um göng og hins vegar brú, hvort hann hafi myndað sér skoðun á því hvernig þetta yrði framkvæmt. Ráðherra og ríkisstjórn hafa verið hér með mikla flugeldasýningu og talað um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Nú á að fjármagna framkvæmdirnar með þessu blessaða innviðafélagi sem enn hefur ekki verið stofnað til. Ef ég myndi biðja þingmanninn að giska, hvenær telur hann að farið verði í einhverjar alvöruframkvæmdir hvað Sundabraut varðar miðað við fyrirliggjandi gögn?