samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hlustaði á hv. þingmann í dag benda á að það er augljóslega fráleitt að setja þetta ekki í samráðsgáttina. Afsakanir hæstv. ráðherra halda ekki vatni. Að reyna að kenna stjórnarandstöðunni um það að hæstv. ríkisstjórn setti þetta ekki í samráðsgátt með einhverjum lúppum er algjörlega út í hött. Nú er það þannig að þessi áætlun, sem nær yfir allt landið og alla samgöngumáta, snertir ótrúlega marga. Yfirlætið í þessari ríkisstjórn er svo mikið og þau eru svo mætt á svæðið: Ég á þetta, ég má þetta, ég þarf ekki að fá sjónarmið einhvers fólks og samráðsgátt er bara fyrir einhverja aðra en mig. Stutta svarið við spurningu hv. þingmanns er: Auðvitað á að lengja þennan tíma nema hvað að það mun taka lengri tíma að vinna þetta vegna þess að þau fóru ekki að lögum (Forseti hringir.) og settu þetta í samráðsgátt.