samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir sína framsögu hér. Mig langar að fá að vita meira um hans sýn á samgöngusáttmálann sem ég lít á sem nokkurs konar tímamótasamkomulag sem var gert af hálfu hans ríkisstjórnar og þeim sex sveitarfélögum sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar var lagt upp í mjög metnaðarfulla uppbyggingu eða áætlun um uppbyggingu á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu sem myndi hafa það að markmiði að stytta ferðatíma fólks, minnka tafir, auka umferðaröryggi o.s.frv. Nú er væntanlega betra að vinna þetta eftir þeirri umgjörð sem hæstv. ríkisstjórn hv. þingmanns lagði upp með, svo hvað vill hv. þingmaður nákvæmlega gera í þessum samgöngusáttmála? Ég velti fyrir mér: Hvað er hv. þingmaður að leggja til að við gerum? Við erum sannarlega að fjalla um þetta hér því þetta er talið upp í samgönguáætlun. Við erum að fara að fjalla um þetta í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Hvað er það meira sem hv. þingmaður vill fá fram í þessari umræðu?