157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:23]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að bregðast við mínu andsvari. Nú veit ég ekki betur en svo að sjúkraflutningamenn hafi talað um að með tilkomu borgarlínunnar muni einmitt aðgengi að spítalanum aukast verulega því að þeir muni nýta sér forgangsakreinar sem verða til, svo að ég velti fyrir mér hvort það sé ekki einmitt líka hagur sjúkraflutninga, að koma sjúklingum hratt og vel í gegnum forgangsakreinar. Þegar borgarlínan verður orðin að veruleika verða jafnframt væntanlega færri á sínum einkabíl því ég veit alla vega fyrir mína parta að þegar ég ferðast erlendis þá hef ég bara gengið mjög brosandi inn í almenningssamgöngur í borgum þar. Við sjáum það vel að það gengur náttúrlega ekki að auka og auka við umferð því að við höfum einfaldlega ekki pláss til að búa til fleiri akreinar og fleiri götur. Því finnst mér þessi nálgun sem hér var lagt upp með af ríkisstjórn hv. þingmanns, hvort sem hann var fylgjandi henni eða ekki, mjög skynsamleg. Ég myndi í raun vilja sjá sambærilega vinnu fara af stað fyrir almenningssamgöngur á landsbyggðinni því að þetta skiptir miklu máli fyrir framtíðina.