157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:31]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir fyrirspurnina um Breiðafjarðarferjuna Baldur. Ég vil líka taka fram að ég nota hana á hverju einasta ári og mín fjölskylda hefur gert það um áraraðir. Ég man meira að segja frá því ég var krakki þegar verið var að hífa bílana ofan í lestina. Hvað varðar nýjan Baldur átti ég nú mál á síðasta kjörtímabili þar sem leitað var eftir því að keyptur yrði nýr Baldur og þá rafknúinn. Staðan er þessi: Núverandi Baldur er tiltölulega nýlegt skip sem kom frá Noregi. Ég held að hann hafi komið 2023 og tók þá við af öðru skipi sem var ömurlegt, ef ég má orða það þannig, fólk borðaði niðri í kjalsogi o.s.frv. Hann var bara með eina vél. Skipið sem leysti það skip af hólmi er tiltölulega nýlega komið, 2023, og ég sé ekki fyrir mér að á næstu árum komi nýr Baldur. Ég legg hins vegar mikla áherslu á að Baldur mun sinna ferjusiglingum á Breiðafirði í framtíðinni. (Forseti hringir.) Þetta opnar aðganginn að Breiðafirðinum og þetta er varaskip fyrir Herjólf, gríðarlega mikilvægt skip fyrir Vestfirði (Forseti hringir.) og ekki síður Vesturbyggð. Ég tel mikilvægt að við endurnýjum ferjuna (Forseti hringir.) innan ekki svo langs tíma. Sama á við um aðrar ferjur. Við þurfum að fara að skoða þessi ferjumál mun betur, t.d. Sæfara sem siglir til Grímseyjar o.s.frv.