157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal alveg viðurkenna að ég taldi mig vera að biðja fyrst um andsvarið og var frekar pirraður að vera númer þrjú, en í raun er ég mjög ánægður núna því að þetta sýndi nákvæmlega hversu orð hæstv. ráðherra eru fáránleg. Hæstv. ráðherra svarar málefnalegum spurningum sem eru sannarlega mikilvægar — kostnaður kannski nokkuð hundruð milljarðar, einhver hundruð milljóna, kannski einhverjir milljarðar — en þegar kemur að risamálum, langstærstu málunum, segir hann: Við getum ekki rætt þetta núna. Hæstv. ráðherra hefur ekki viljað taka umræðu við mig um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem menn eru að tala um langstærstu upphæðirnar, hundruð milljarða, langdýrustu framkvæmdir í sögu þjóðarinnar þegar kemur að samgöngumannvirkjum. Hann kemur hingað upp og segir: Heyrðu, nei, það er ekki tími til að ræða þetta núna. Það er búið að ganga frá þessu öllu, og hv. þingmaður var í ríkisstjórn.

Virðulegur forseti. Þetta kostaði hundruð milljarða. Þetta hefur ekki verið rætt hér — það er algjört aukaatriði hverjum er um að kenna, menn hafa ekki lagt í þá umræðu eins og ákveðið var á sínum tíma. Hæstv. ráðherra veigrar sér við því og víkur sér undan því að ræða þessi mál.