samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra tekur alltaf vel í það en það verður hins vegar aldrei neitt úr því. Þetta eru stærstu framkvæmdirnar sem um ræðir, Sundabrautin og samgöngusáttmálinn. Það er eiginlega ekkert um þetta í þessari áætlun, eiginlega ekki neitt. Það er stórmál hvernig menn fara með Keldnalandið. Það er stórmál hvernig menn ætla að fjármagna samgöngusáttmálann; því hefur ekki verið svarað. Það er ekki vikið einu orði að því, en það liggur alveg fyrir að taka þarf ákvörðun um það. Það hefur verið bent á að það hefur galla í för með sér að fara þær leiðir sem lagt er upp með; það hefur verið bent á það í mörg ár og ég benti hæstv. ráðherra á það þegar hann tók við. Það hefur komið fram á fundum með íbúum, bæði í Laugardalnum og í Grafarvoginum, en þar hafa menn bent á augljósa galla sem ég næ ekki að fara í hér á nokkrum sekúndum. En það er ekkert um þessi risamál, ekki neitt, í þessari áætlun.