157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:51]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Það á að veita faglega aðstoð. Er ekki von á neinu fjármagni í þessar rannsóknir eins og allir flokkar lofuðu fyrir síðustu kosningar, líka flokkur hæstv. ráðherra? Ég er ekki að tala um að bora göng til Vestmannaeyja. Ég er að tala um að gera rannsóknir, þrepaskiptar rannsóknir, eins og starfshópur á vegum ráðuneytisins komst að niðurstöðu um að væri skynsamlegast að gera; að bora rannsóknarholur hverja á fætur annarri eftir því hver niðurstaðan yrði í hvert skipti. Við erum þannig í fyrsta lagi að tala um 60 milljónir, síðan örlítið meira. Eftir því sem fram vindur og eftir því hverjar niðurstöðurnar verða erum við kannski að tala um 3–400 milljónir til að klára þetta en það er unnt að stoppa eftir hvert þrep. Mönnum leist vel á þetta fyrir síðustu kosningar. Er hæstv. ráðherra virkilega að segja mér að ríkið ætli ekki að koma að neinni fjármögnun þarna, einungis faglegri aðstoð?

Ég ætla einnig að benda hæstv. ráðherra á að í samgönguáætluninni sem hér liggur frammi er gert ráð fyrir að fjármagn til reksturs ferja lækki úr 1,7 milljörðum í 1,4 milljónir. Á sem sagt að setja samgöngur til Vestmannaeyja í fullkomið uppnám, hæstv. ráðherra?