157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

Störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Í þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í heimsmálunum hefur mesta athygli fengið hvað þessi og hin löndin eru að gera, bæði í viðbrögðum og undirbúningi fyrir einhvers konar stigmögnun. Ég nefndi í ræðu minni hér í haust um varnarmál þá nýju staðreynd að Danir skilgreindu ógn núna frá Bandaríkjunum sem nýja ógn í sínu árlega hættumati. Það mat Dana hefur nú raungerst. Minna hefur verið rætt um hvað er verið að gera í vörnum á Íslandi og undirbúningi á þessum nótum.

Frú forseti. Allsherjar- og menntamálanefnd fjallar þessa dagana um frumvarp dómsmálaráðherra um almannavarnir. Hlutverk borgaralegra stofnana undir merkjum almannavarna er lykillinn þegar kemur að varnar- og öryggismálum landsins. Mikilvægt er að við tryggjum þeim fjármagn og lagaumhverfi til að sinna sínum mikilvægu verkefnum. Þótt samstarf okkar og ábyrgð við uppbyggingu á innviðum og skipulagi hernaðartengdra þátta sé mikilvægt má aldrei láta hina borgaralegu innviði bíða. Gæta þarf að jafnvægi við úthlutun fjármagns til varnarverkefna sem hluta af NATO-samstarfinu og mikillar eflingar á borgaralegu þáttunum. Genfarsáttmálinn gerir nefnilega skýran greinarmun á þessum þáttum og við verðum að tryggja mannafla, tól og tæki til að sinna borgaralega hlutanum ásamt því að tryggja þeim þá friðhelgi sem sáttmálinn gerir ráð fyrir, m.a. með því að fella verkefni undir almannavarnir en merki almannavarna nýtur sérstakrar verndar í átökum.

Frú forseti. Nú þarf að hraða vinnu við að semja frumvörp sem snúa að öryggislöggjöf, vörnum mikilvægra innviða, neyðarbirgða og fæðuöryggis. Þessi vinna getur ekki beðið og ég er þess fullviss að þingheimur er tilbúinn til að bretta upp ermar ef frumvörp þessa efnis koma til okkar kasta.