Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í morgun þegar ég stóð uppi á Reykjaborginni og horfði yfir fallega sveitarfélagið mitt Mosfellsbæ og fjallgarðinn fyrir aftan varð mér enn og aftur hugsað til þess hvað ég elska þetta land mikið. En mér varð líka hugsað til vina okkar sem sitja á Inatsisartut, grænlenska þinginu, hvernig tilfinning það er að þjóðkjörinn fulltrúi eins okkar helsta bandamanns lýsi því yfir að vilja taka landið yfir. Ég verð að viðurkenna, frú forseti, að það er erfitt ef ekki ómögulegt að setja sig í þau spor. Grænlendingar eru vinir okkar og við eigum að standa með þeim óhikað. Við felum okkur ekkert út af landakortinu. Þetta eru okkar næstu nágrannar og við skulum standa með þeim. En, virðulegur forseti, munið þið síðast þegar við Íslendingar stóðum frammi fyrir hótunum frá okkar bandamönnum, í hruninu, þegar Bretar beittu gegn okkur hryðjuverkalögum? Hvað gerðum við þá? Hættum við að tala við Breta? Nei, það var örugglega aldrei mikilvægara en einmitt þá að hefja samtalið við alla okkar vini og vandamenn.
Virðulegur forseti. Nú held ég að einmitt til stuðnings Grænlendingum þurfi íslenskir þingmenn að sameinast um að styðja Grænland, tala máli Grænlendinga en fyrst og fremst tala fyrir öryggi á norðurslóðum. Það gerum við ekki bara hvert við annað. Það gerum við einna helst í Washington.
Virðulegur forseti. Ég vona að utanríkismálanefnd þingsins, Norðurlandaráð, Vestnorræna ráðið, þingmannaráðstefnan okkar um norðurslóðir, NATO-nefndin okkar, allir okkar þingmenn sem eru í alþjóðasamstarfi séu núna að hugsa: Hvernig getum við lagt okkar af mörkum?