157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:05]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á því að óska ráðherra og ríkisstjórninni til hamingju með samgönguáætlun. Það er virkilega gott að hún sé komin fram og ég hlakka til að vinna með umhverfis- og samgöngunefnd að málinu. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir að það gæti orðið töluvert mikil vinna. Þar sem málið fór ekki í samráðsgátt þarf lengri tíma til að kalla inn athugasemdir en við munum vinna það vel og ötullega. Hér er verið að auka framlög til samgöngumála. Það er verið að auka framlög og það er mikilvægt og það er jákvætt. Framlög verða yfir 70 milljarðar á ári næstu fimm ár sem eru vel yfir 360 milljarðar heilt yfir ef horft er á tímabilið 2026–2030, ef allt gengur eftir. Auk þess er verið að horfa á innviðafélagið sem ég held að þingheimur allur standi á bak við, sem er þá væntanlega viðbót við þessar fjárfestingar. Og hér er verið að horfa á stærri framkvæmdir eins og Ölfusárbrú, jarðgangagerð o.fl. Þetta er mjög jákvætt því að það er nauðsynlegt að fjárfesta í innviðum. Það er nauðsynlegt fyrir íbúa, það er nauðsynlegt fyrir öryggi og það er að sjálfsögðu nauðsynlegt fyrir atvinnulífið.

Það er eðlilegt að viðhaldsþörf hafi aukist. Við erum að horfa 15 ár fram í tímann en ef við horfum 15 ár aftur í tímann sjáum við hversu margt hefur breyst í íslensku samfélagi. Við sjáum gjörbreytingu ef við horfum á fjölda íbúa. Íbúum hefur fjölgað um 40.000–50.000 frá árinu 2018. Ef við horfum síðan á fjölgun ferðamanna þá eru þeir komnir upp í 2,3 milljónir, eða voru það árið 2024. Síðan erum við auðvitað að tala um miklu meiri þungaflutninga á vegum. Allt spilar þetta saman á sama tíma og viðhald hefur ekki verið fullnægjandi vegna þess að við höfum tekist á við stór áföll, Covid, áskoranir á Reykjanesi, Úkraínustríðið o.fl. Það er því jákvætt að við séum að fjárfesta til viðbótar því að fjárfesting í innviðum margborgar sig. Hún gerir það kannski ekki alltaf í Excel-skjölum en við sjáum það þegar við horfum á einbreiðar brýr sem hafa þjónað samfélaginu í tugi ára. Þá verður maður feginn að þeir sem byggðu þær brýr voru ekki að horfa á Excel-skjöl, voru ekki að miða við hver arðsemin yrði eftir tíu eða 20 ár, hvort þetta væri hagkvæm framkvæmd, heldur réðust einfaldlega í að byggja brýr yfir straumharðar ár sem hafa þjónað samfélaginu um áratugi og gera það enn í dag. Það eru þessar brýr sem sýna okkur best að innviðir borga sig, þeir eru mikilvægir fyrir landið allt.

Mig langar hins vegar til að gera nokkrar athugasemdir og fara yfir núverandi áætlun, yfir það sem ég hef áhyggjur af. Í fyrsta lagi er það staða efnahagsmála því að staða efnahagsmála í dag er allt önnur en hún var síðasta haust. Hún er allt önnur ef við horfum á óvissuna í alþjóðakerfinu. Hún er allt önnur ef við horfum á verðbólguhorfur og það eru þessir þættir sem hafa áhrif á það hvort við sjáum fram á verri rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki, hversu dýrt það verður að fjármagna einstakar framkvæmdir. Allar áætlanir um að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári verða óraunhæfari. Þessir óvissuþættir þýða einfaldlega að hvert frávik í tekjum, atvinnu eða fjárfestingu getur haft mikil áhrif á ríkisfjármálin, mikil áhrif á vaxtabyrði og traust markaða og við þurfum því að vera búin undir það að breytingar verði á því hvort við getum farið í þær framkvæmdir sem hér er horft á. Þetta skiptir nefnilega meginmáli fyrir samgönguáætlun. Það er verið að tala um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð næstu fimm árin, en hvað þýðir það raunverulega? Það þýðir að samgönguáætlun er inni í fjármálaáætlun en það eru fjárlög hvers árs sem ráða. Þegar óvissa eykst er meiri óvissa um það hvort fjárlög næsta árs og þarnæsta árs standist og þar með er óvissan um einstakar framkvæmdir meiri. Þetta er lykilatriði sem við verðum að horfa á og Alþingi á að gera þá kröfu að við séum með uppfært áhættumat og séum að rýna áætlunina með þessar breytingar í huga.

Mig langar líka til að fara aðeins yfir innviðafélagið. Ég vil taka fram að ég held að innviðafélagið sé eitthvað sem við stöndum öll að baki. Það er mikilvægt að horfa á það í samhengi við stærri framkvæmdir en það er líka mikilvægt að slíkt innviðafélag sé gagnsætt í sinni starfsemi, að það sé sjálfbært og að við vitum hvernig það verður fjármagnað. Þó svo að þetta sé sérstakt innviðafélag þá er það samt sem áður ríkið sem ber endanlega ábyrgð og við erum líka að tala um að beina fjárfestingum, t.d. lífeyrissjóða, inn í slíkt félag. Það er þar af leiðandi mikilvægt að öll umgjörð sé eðlileg og að ekki sé verið að taka framkvæmdir út fyrir sviga til þess að þær hafi ekki áhrif á hallarekstur. Gagnsæið þarf að vera algjört og til staðar. Ef vel tekst til þá er þetta innviðafélag lykilmál til þess að hraða framkvæmdum og það er jákvætt.

Þegar við erum að tala um þetta félag verður mér svo oft hugsað til jarðhitavæðingarinnar. Það eru svo mörg merki sem tengjast saman þarna. Þegar við vorum að jarðhitavæða Ísland keyptum við eina stóra vinnuvél, gufuborinn Dofra. Gufuborinn Dofri boraði a.m.k. 130 holur um allt Ísland og er sennilega verðmætasta vinnuvél Íslandssögunnar. Við erum að tala um bor sem var hér í gangi frá 1957. Hann boraði eftir heitu vatni, bæði á háhita- og lághitasvæðum, og vitið þið hvað? Þessi eini bor lagði grunninn að yfir 20 hitaveitum og þetta eru hitaveiturnar sem við erum enn að ylja okkur við í dag; þær sýna okkur hvers vegna fjárfestingar í innviðum geta haft grundvallaráhrif og þar af leiðandi eru innviðafélagið og jarðgöngin svo mikilvæg, og mikilvægt fyrir okkur öll að vel takist til.

En nú að áætluninni sjálfri: Það er af mörgu að taka varðandi forgangsröðun. Mig langar í fyrstu ræðu að nefna nokkur dæmi um atriði sem eru mikilvæg; það er mikilvægt að skoða það í vinnu nefndarinnar hvort við þurfum að breyta forgangsröðun þar. Í fyrsta lagi langar mig að nefna sjóvarnirnar. Og af hverju geri ég það? Jú, vegna þess að ágangur sjávar á Suðurnesjum og í Vík í Mýrdal ógnar lykilinnviðum og það er mikilvægt að við horfum á möguleika þess að færa fjárfestingar í slíkum vörnum yfir í sérstakan sjóð. Þeir fjármunir sem er verið að gera ráð fyrir hér eru allt of litlir. Við sjáum það bara í samhengi við nýjan sandfangara á Vík í Mýrdal að kostnaðurinn er hátt í 500 milljónir. Við sjáum, ef við horfum á Suðurnesin, að þetta eru mörg hundruð milljóna króna fjárfestingar á næstu árum á meðan heildartalan, eins og horft er á þetta núna, er í kringum 150 milljónir. Þarna er gríðarlega mikið bil. Ég get líka nefnt mikilvægi þess að fjárfesta í tengivegum eins og undir Önundarholtsvegi og Urriðafossvegi og fleiri vegum sem hafa grotnað niður en eru gríðarlega mikilvægir, ef við horfum t.d. á sterkari og öflugri íbúabyggð og ferðaþjónustu. Svo er hægt að nefna færslu þjóðvegarins hjá Hveragerði sem er gríðarlega mikilvæg fyrir uppbyggingu Hveragerðis. Á Suðausturlandi er þörf á því að horfa á færslu þjóðvegarins hjá Öræfum því að það er einmitt dæmi um framkvæmd sem tekur á fjölda einbreiðra brúa. Skaftafellsá, Svínafellsá, Virkisá og Kotá eru allar undir þeim vegi og þar má slá margar flugur í einu höggi. Ég get nefnt Vestmannaeyjar þar sem við erum að tala um áskoranir sem varða þjóðveg Vestmannaeyja og svo mætti lengi telja.

Ég vil að lokum segja: Ef við fjárfestum í samgöngum þá erum við að fjárfesta í æðakerfi landsins. Ef við gerum það vel, ekki síst á landsbyggðinni, þá rís allt landið. Þannig viljum við hafa það.

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmönnum fyrir áheyrnina og hlakka til samtalsins og samvinnu um þessa áætlun.