157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:18]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir lykilspurningu því að við verðum að passa okkur á því að festa okkur ekki í loforðum sem hagkerfið okkar getur ekki borið. Það er þess vegna sem þarf að hafa orðræðuna rétta og líka að passa upp á að þegar forsendur breytast hratt í hagkerfinu séum við virkilega að taka það inn í umræðu eins og þessa. Og það er lykilatriði í orðræðunni að þótt við séum að tala um að eitthvað sé fullfjármagnað í fjármálaáætlun þá eru það fjárlög hvers árs sem gilda. Það er ekki víst að þær framkvæmdir sem þó eru á áætlun verði að veruleika ef óvissan er eins mikil og hún er í hagkerfinu í dag. Við þurfum að tala hreina íslensku um þessi mál. Suðurkjördæmi á það skilið, landið allt á það skilið. Þar sem hv. þingmaður spurði út í samráð þá hefði að sjálfsögðu verið heppilegra ef málið hefði farið í samráðsgátt vegna þess að þá væri umræðan hér og nú dýpri. Ég treysti því að umsagnarfrestur verði lengdur svo að aðilar fái góðan tíma til að senda inn athugasemdir til nefndarinnar og að nefndin fái sömuleiðis rúman tíma. Ég vil samt sem áður segja að ég held að það sé sameiginlegt hagsmunamál okkar allra að við náum að afgreiða þessa áætlun í vor og því vona ég að ríkisstjórnin haldi þannig á dagskrá þingsins að við getum tryggt að svo verði. Það er mikilvægt.