samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra góða spurningu. Ég tek undir það að mikilvægt er að stofna innviðafélag, og ég hrósa hæstv. ráðherra fyrir að ýta því áfram, en við þurfum að huga að umgjörðinni og upplýsingum um það. Við þurfum að vita á dýptina hvert umfangið er. Hverjar eru skuldbindingarnar? Hversu mikið ætlar ríkið t.d. að setja inn í þetta félag á ári? Hvernig verður þessu háttað með ríkisábyrgðirnar? Hvernig er tekjumódelið að öðru leyti, varðandi þjónustusamninga, varðandi það hversu mikið má innheimta sem gjaldtöku o.s.frv.? Allt eru þetta lykilbreytur sem hafa áhrif á það hversu mikil áhætta þetta er fyrir ríkið. Þetta hefur áhrif á það hversu mikill hvati er innbyggður í kerfið til þess að fara í ólíkar framkvæmdir. Það er því mikilvægt fyrir þingið að geta rætt þetta og best hefði verið ef þingið hefði getað rætt þetta á sama tíma og við ræðum samgönguáætlun.
Það er áhugavert að horfa aftur í tímann og skoða það þegar farið var í jarðhitavæðinguna. Þá vorum við með bor sem var að bora í ólíkum sveitarfélögum. Þá var einmitt líka farið í það að stofna Orkusjóð sem var fjárfestingarsjóður fyrir jarðhitavæðingu. Það módel sem sett var upp þar var ákveðið fjárfestingarmódel sem lágmarkaði áhættu sveitarfélaga til að skapa hvata fyrir sveitarfélögin að fara í slíkar framkvæmdir. Sú umgjörð sem sköpuð var í kringum Orkusjóð var vel heppnuð; það var innbyggður hvati hjá sveitarfélögunum að fara í framkvæmdir og nýta borinn sem hafði verið keyptur til landsins. Þarna vann þetta tvennt saman, umgjörðin og vinnutækið sem keypt var til landsins. Að ákveðnu leyti má hugsa innviðafélagið á sama hátt. Við viljum búa til umgjörð sem skapar ákveðinn hvata og lágmarkar um leið áhættu ríkisins.