samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Við erum hér í fyrri umræðu um samgönguáætlun sem er lögð fram hér í upphafi árs 2026. Það er nokkuð langt síðan slík áætlun var samþykkt hér á þingi, ég held að það sé farið að slaga hátt upp í sex ár. Það var kominn tími til að við fengjum að fjalla hér um nýja samgönguáætlun. Það sem er helst að frétta hvað varðar framlagningu þessarar áætlunar og yfirbragð hennar er að fyrri áætlun er bara kippt úr sambandi. Það eru stóru fréttirnar hvað varðar þessa áætlun, eldri áætlun, að henni er einfaldlega breytt og framkvæmdum sem voru komnar af teikniborðinu — það átti bara eftir að ræsa vélarnar, eins og einhver sagði — er bara hent ofan í skúffu. Það er kannski erfitt að spá fyrir um það hvað þetta hefur í för með sér. Það er auðvitað háð algjörri óvissu hvort næsti ráðherra, næsti innviðaráðherra eða samgönguráðherra, geri slíkt hið sama. En þetta er auðvitað ekki nægilega gott upp á væntingar íbúa og þeirra sem eiga von á því að framkvæmdir séu í þann veginn að hefjast. Síðan gætu stjórnarskipti orðið og nýr ráðherra ákveðið að hætta við þær framkvæmdir sem menn voru komnir á fremsta hlunn með að leggja af stað með. Það er raunverulega það sem er undir með vinnubrögðum af þessu tagi. Það er svo allt annað mál hvort betra er að fara fyrst í Fljótagöng frekar en Fjarðarheiðargöng. En þegar búið er að ákveða að fara í eitthvað, allur undirbúningur er búinn og einungis á eftir að ræsa vélarnar, þá er það auðvitað afleitt, sérstaklega fyrir íbúa sem sjá á bak mjög mikilvægum og nauðsynlegum framkvæmdum fyrir viðkomandi byggðarlag. Nóg um það, frú forseti.
Í öðru lagi má kannski líka segja: Þessi samgönguáætlun kemur hér inn í þingið til umræðu en var ekki birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þetta teygir einungis á ferli málsins hér í meðförum þingsins. Það er það sem við fáum út úr þessu. Það mun teygja á ferli málsins hér fyrir þinginu. Í þriðja lagi ætlaði ég aðeins að tala um að ræsa vélarnar, en stjórnarliðar hafa talað um það. Ég held að landsmenn séu orðnir ansi þreyttir á slíkum frösum. Það eru engar vélar, það er ekki verið að ræsa neinar vélar. Það er frekar verið að stöðva þær. Vélarnar sem voru tilbúnar að fara í gangagerð á Austfjörðum, það er búið að drepa á þeim. Það er líklega verið að færa þær á milli landshluta en þar verða þær líka að bíða. Þar verða þær að bíða drjúgan tíma þangað til unnt verður að fara í verkefni sem hæstv. ráðherra hyggst byrja á þar. Þetta eru hálfgerð öfugmæli úr munni þessarar ríkisstjórnar því að öll meiri háttar verkefni á sviði samgangna eiga ekki að fara af stað fyrr en á næsta kjörtímabili, að mestu leyti.
Ef ég lít á Suðurkjördæmi þá er sagan eiginlega sú að það er ekkert að fara í gang þar. Ekki er gert ráð fyrir göngum í gegnum Reynisfjall sem hefur verið kallað eftir í fjöldamörg ár heldur er, í áætluninni sem við erum hér að fjalla um, gert ráð fyrir að það verkefni verði skoðað á tímabilinu 2036–2040; það eru meira en tíu ár þangað til það verður skoðað. Varðandi tvöföldun Suðurlandsvegar þá er t.d. gert ráð fyrir að helstu framkvæmdir við Hólmsá-Bæjarháls verði á árabilinu 2028–2030. Það er, frú forseti, ef ég veit rétt, á næsta kjörtímabili. Það er ekki núna, það er ekki verið að ræsa neinar vélar. Þessi ríkisstjórn er ekki að fara að ræsa þessar vélar, þetta er á næsta kjörtímabili. Það er mjög einfalt og auðvelt, og líka skemmtilegt, að gera áætlanir sem ganga út á það að aðrir framkvæmi einhverja hluti. Þessi ríkisstjórn er ekki að fara að framkvæma þau verkefni sem ég var hér að nefna. Sama má segja um mjög mörg önnur verkefni, t.d. Reykjanesbraut upp á Flugstöð. Er það að fara að hefjast? Menn eru búnir að kalla eftir þessu árum saman. Farið var í það að gera hringtorg þarna til að draga úr slysahættu en slys voru orðin ansi algeng á þessum kafla. Sem betur fer hefur slysatíðni lækkað eftir það. En hvenær verður þetta? Er verið að ræsa vélar þarna, frú forseti? Nei, það heyrist ekki í neinum vélum á þessu svæði því að áætlunin gengur út á að þetta gerist 2031–2035. Það er eftir líftíma þessarar ríkisstjórnar. Það eru því auðvitað öfugmæli, frú forseti, að tala um að verið sé að ræsa vélarnar. Það má frekar halda því fram að ríkisstjórnin sé að segja: Þið skuluð ræsa vélarnar. Við þurfum á næstu þremur árum að mynda nokkra starfshópa eða fremur spretthópa, skrifa fjölmargar skýrslur, gera fáeinar úttektir, eiga nokkra fundi, gera tvö eða þrjú ný plön, eiga samtöl eða frekar taka samtalið, og svo ræsið þið í næstu ríkisstjórn vélarnar. Við erum svona frekar í undirbúningnum, í excel-vinnunni og í innivinnunni. Ræsa vélarnar, ræsa vélarnar? Og nóg um það.
Það er líka rétt að upplýsa landsmenn um hugmyndir þessarar vinstri ríkisstjórnar um nýja skatta sem koma fram í þessari samgönguáætlun. Hér er átt við hugmyndir um skattlagningu sem koma fram í samgönguáætlun sem nýbúið er að leggja fram. Stjórnarliðar segja áætlunina fullfjármagnaða. Samgönguáætlun er í fyrsta skipti fullfjármögnuð, segja þau. Hvað þýðir það nákvæmlega? Svar hæstv. innviðaráðherra við spurningum hv. þm. Bergþórs Ólasonar hér í gær veitir engin viðhlítandi svör við þessu. Þá sagði hæstv. ráðherra að stofna ætti innviðafélag sem ætti að sjá um flýtiframkvæmdir, samvinnuverkefni og jarðgangagerð. Og hvernig skyldi það vera gert? Samkvæmt svörum hæstv. ráðherra í gær verða þessi verkefni fjármögnuð á fjóra vegu. Í fyrsta lagi með því að ríkið leggi fram árlegt eiginfjárframlag með samningi við félagið. Í öðru lagi með lánsfjármögnun, þ.e. að félagið taki lán með ríkisábyrgð. Í þriðja lagi með gjaldtöku, þ.e. að félagið taki veggjöld af vegfarendum sem nýta sér samgöngumannvirkin. Í fjórða lagi var reiknað með aðkomu fjárfesta með sölu skuldabréfa. Athuga ber að allir liðirnir, liðir 2–4 af þessum fjórum liðum, eru þess eðlis að þá þarf að endurgreiða, þ.e. þetta verður greitt með gjaldtöku þegar upp er staðið. Það er einfaldlega verið að boða nýja skatttöku með þessari samgönguáætlun. Nýir skattar eru boðaðir, að flýtiframkvæmdir, samvinnuverkefni og jarðgangagerð verði fjármögnuð að hluta eða í heild með innheimtu veggjalda. Hvað varð um þessar auknu skatttekjur sem ríkissjóður hefur aflað sér með kílómetragjaldinu, með veiðigjöldunum, með vörugjöldunum? Hluti af þessu og jafnvel mestallt átti að renna til uppbyggingar innviða, þar á meðal samgöngumannvirkja. Hvað varð um þá aura, frú forseti?
Frú forseti. Þetta var allt of stuttur tími, ég var rétt að byrja.