samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann um álit hans á því hvernig hægt sé að fjármagna samgönguáætlun fimm ár fram í tímann, fyrir árin 2026–2030, öðruvísi en að vísa til fjármálaáætlunar. Fjármálaáætlun er til fimm ára, fyrsti hluti samgönguáætlunar er líka til fimm ára, yfir sama tímabil. Við erum bara með fjárlög til eins árs. Fjárlög þurfa að taka mið af fjármálaáætlun, fara eftir markmiðum sem sett eru í fjármálaáætlun. Það er það sem er átt við þegar talað er um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Ofan á það stofnum við innviðafélag til að sjá um ákveðnar nýframkvæmdir. Þessar nýframkvæmdir eru Fljótagöng, Ölfusárbrú og Sundabraut. Þar verður gjaldtaka. Sundabraut verður algerlega borguð með gjaldtöku. Ég minni á að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason er meðflutningsmaður að þingsályktunartillögu hv. þm. Jens Garðars Helgasonar um samgöngufélagið Þjóðbraut. Og viti menn: Þar er talað um vegtolla á allar stofnbrautir og öll göng. Ef það er ekki skattur, þá veit ég ekki hvað. Hvernig vill hv. þingmaður fjármagna samgönguframkvæmdir á landinu? (Forseti hringir.) Er þetta ekki í samræmi við eigin þingsályktunartillögu — eða hvernig ætla þau að gera það, á karlinn í tunglinu að borga það?