157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:38]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Samgönguframkvæmdir á Íslandi eru fjármagnaðar með fjárlögum hverju sinni. Fjárlög hverju sinni taka mið af fjármálaáætlun á því tímabili sem fjárlögin ná yfir. Við erum líka með veggjöld. Við erum með veggjöld í Vaðlaheiðargöngum. Við munum vera með veggjöld við Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljót. Við vorum með veggjöld í fleiri göngum áður fyrr, Hvalfjarðargöng voru t.d. fjármögnuð þannig. Sundabraut verður fjármögnuð með veggjöldum. Við getum fjármagnað þetta með veggjöldum, látið notendur borga, eða með skattpeningi almennings; það eru tvær leiðir og að sjálfsögðu eru lán borguð upp á þeim tíma.

Mig langar aðeins að koma inn á það að hv. þingmaður sagði að flest af þessu ætti að gerast á öðrum tímabilum. Ég get bara bent á það að í tillögu til samgönguáætlunar, sem hér er til umræðu, er hringvegur um Ölfusá á framkvæmdatíma áranna 2025–2028; hringvegur um Varmá-Kamba 2029–2031; Búðafossvegur, þar er gert ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir á árinu 2026–2028; Minni-Núpur o.s.frv. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður hefur greinilega ekki lesið það sem á að gera á fyrsta framkvæmdatímabili áætlunarinnar og ég hvet hann til að gera það. Samkvæmt máli hans á allt að gerast á öðru tímabili, (Forseti hringir.) en ég skora á hv. þingmann að lesa skjalið og sjá hvað á að gera á fyrsta tímabili í hans kjördæmi.