samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seinni spurninguna, þar sem hann var að benda á að þetta yrði ekki gert nema með einhvers konar gjaldtöku eða skattfé. Það er alveg rétt, ég geri mér fulla grein fyrir því. En stjórnarliðar tala eins og þetta sé fullfjármagnað. Ef það á að taka lán til að standa undir þessu og greiða fyrir þetta með veggjöldum langt fram í tímann þá er þetta auðvitað ekki fullfjármagnað. Og flest þessi stóru verkefni eru þar. Ég vil einnig benda á, frú forseti, að fyrir rúmu hálfu ári voru lögð á veiðigjöld og þá höfðu stjórnarliðar uppi þann málflutning að þau myndu ganga til innviðauppbyggingar. Þess sjást ekki merki, hæstv. ráðherra, og sérstaklega ekki í þeim byggðarlögum sem myndu greiða mest, sem eru mjög mörg sveitarfélög í Suðurkjördæmi. Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú, það var löngu byrjað á þeim verkefnum áður en þessi ríkisstjórn kom til.