157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:43]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans spurningar. Hann var að tala held ég aðallega, ef ég skildi hann rétt, um arðsemi framkvæmda. Arðsamasta framkvæmd í samgöngumálum á Íslandi í dag er augljóslega, og held ég á alla vitorði, gerð Sundabrautar og það hefur verið þannig í áratugi. Hvers vegna ekki hefur verið ráðist í þá framkvæmd er mjög mörgum algerlega hulin ráðgáta en hefur eitthvað að gera með stjórnartauma Samfylkingar í höfuðborginni. Þeir hafa flækst þar fyrir árum og áratugum saman, byggt í vegstæðinu og ýtt þessu á undan sér allan tímann. Jú, Íslendingar voru stórhuga hér á árum áður og ég get komið frekar inn á það í mínu seinna andsvari.