157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:44]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætissvar. Svo ég ítreki þá spurningu sem ég var að reyna að koma á framfæri áðan, sem snýr að arðseminni, þegar við erum að réttlæta það að raða framkvæmdum eftir því hver arðsemi þeirra er. Nú bý ég í Norðausturkjördæmi og ég reikna með því að ef við hefðum reiknað til enda arðsemi Vaðlaheiðarganga væru þau ekki til staðar. En aftur á móti mælum við yfirleitt ekki lífsgæði fólks af því og þegar við erum að tryggja samgöngur sömuleiðis þá er ekki mælt í samgönguáætlun hver lífsgæðin eru. Við getum horft til þess varðandi Fjarðarheiðargöng eða Fljótagöng eða öll þau göng sem eru mikilvæg vegna þess að þegar við erum að tala um arðsemi verðum við líka að horfa til þess hvaða lífsgæði við erum að skapa íbúum þessa lands og lykilatriði í að tryggja byggð í landinu er að horfa á það hvernig við bætum lífsgæði íbúa þessa lands.