157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Í umræðum hér í gær átti ég í andsvörum við hæstv. innviðaráðherra um þetta frumvarp og það snýr líka að innviðafélaginu, sem hefur verið rætt aðeins hér í dag, sem er óstofnað, frumvarpið er ekki komið fram og við vitum ekkert hvað stendur á bak við það. Svörin sem við fengum er að þetta hafi verið rætt í ríkisstjórn. En þetta er ekki fjármagnað, við vitum ekki hvað er í gangi. Það er annað atriði, sem hefur líka komið fram hér, að í fjármálaáætlun sé þetta fjármagnað út þetta tímabil núna, 1. áfanga, aðgerðaráætlun og samgönguáætlun. Ég vek þá athygli á að á bls. 16 stendur, og vek athygli þingmanna og þess þingmanns sem ég er í andsvari við á því, að: „Forsendur framkvæmda samkvæmt töflum 4–5 og 7–10 í samgönguáætlun miðist við fjármálaáætlun þar sem með aðhaldi er stefnt að hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. Með nýrri fjármálaáætlun ár hvert verði forgangsröðun framkvæmda endurskoðuð.“ Þetta stendur hérna. Ég hef bara ekki heyrt minnst á þetta. Það stendur á nokkrum stöðum í frumvarpinu að forgangsröðunin verði endurskoðuð. Það hefði nú verið ágætt að ráðherrann (Forseti hringir.) hefði komið og svarað fyrir þetta. En þegar við skoðum þetta í samhengi, innviðafélagið og síðan aftur þau orð sem hér standa, þá sjáum við að þetta er ekkert framkvæmd ...