samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir afar áhugaverða og gagnlega ábendingu hvað varðar þetta atriði vegna þess að stjórnarliðar og hæstv. ráðherrar hafa skýlt sér á bak við fjármálaáætlun, að það væri ekki hægt að fara gegn henni. En í textanum, eins og hv. þingmaður benti á, er þetta auðvitað algerlega breytingum háð eins og margt annað og í raun unnt að breyta þessu hvenær sem ráðherra dettur það í hug.
Fyrst ég hef svona ágætan tíma, frú forseti, þá ætla ég aðeins að tala um stórhug þjóðarinnar. Hér á árum áður, upp úr 1970, ákvað þjóðin að ráðast í stórkostlegar samgönguframkvæmdir. Gefin voru út skuldabréf til þjóðarinnar og menn keyptu sér 1.000 kr. skuldabréf eða eitthvað slíkt. — Nú er tíminn allt í einu búinn en hann var ágætur áðan, þannig að ég ætla að halda áfram með þetta síðar.
(Forseti (BHar): Forseti biðst afsökunar á að hafa byrjað of seint að stilla tímann en það er bara ein mínúta í andsvari nú.)