157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:53]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ljómandi fína ræðu. Í þessu fyrra en þó stutta andsvari langar mig að spyrja aðeins út í hans heimabæ, Vestmannaeyjar, sem er mér mjög hugleikinn, og samgöngur þangað, þ.e. í ljósi þess sem kemur fram í þessari samgönguáætlun. Þar er talað um að efla samgöngur á landsbyggðinni í kafla sem heitir Markmið um jákvæða byggðaþróun, sem er vel og er bara ljómandi fínt á pappír, og takmarkið er að efla samgöngurnar. En á sama tíma er verið að lækka framlögin til þeirra, bæði á sjó og landi. Þar sem flugsamgöngur eru því miður svolítið stopular til Vestmannaeyja reiðir fólk sig ansi mikið á Landeyjahöfn og Herjólf en verið er að lækka stuðning við ferjur úr 1,7 milljörðum í 1,4 sem hljómar kannski ekkert sérstaklega mikið yfir þetta tímabil. En í ljósi þess að einnig er verið að lækka framlögin á landi og í flugi spyr ég hvernig honum finnist þetta ganga upp, að verið sé að efla samgöngur á landsbyggðinni, með markmið um jákvæða byggðaþróun, en á sama tíma verið að lækka framlögin til þeirra. Þá spyr maður: Hver á að borga, er það karlinn í tunglinu?