samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Maður veit að þetta er honum hugleikið þannig að maður bíður spenntur eftir síðari ræðu til að fá að heyra aðeins um verðmætasköpunarbæinn Vestmannaeyjar. Mig langaði aðeins í seinna andsvari, þó að hv. þingmaður hafi drepið ansi hressilega á þessu — nei, ég ætla frekar að fara í viðhaldsskuldina við hann þar sem hv. þingmaður er nú úr kjördæmi þar sem þarf að passa vel upp á vegina. Við sjáum það svo sannarlega þegar mörg banaslys hafa orðið út um allt land. Uppsöfnuð viðhaldsskuld er að mati Vegagerðarinnar 180 milljarðar. Það stendur til að hækka árleg framlög upp í 20 milljarða á næstu árum, á að fara úr 13 milljörðum í 17 og svo upp í 20 milljarða, sem er vel. En í þessari mögnuðu og fullfjármögnuðu áætlun til 5 ára, hvernig finnst hv. þingmanni það ganga upp að ekki sé verið að setja nóg í viðhaldsskuldina þegar hún er langtum meiri en það sem á að setja í — svona í ljósi þess hversu mikið stjórnarliðarnir hafa talað um þessa innviðaskuld og viðhaldsskuldina? (Forseti hringir.) Væri ekki spurning um að setja kannski aðeins meira þar þótt við þurfum að sjálfsögðu líka að fara í nýjar framkvæmdir?