157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:57]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir hans seinni spurningu um Vestmannaeyjar. Hann var að hvetja mig til að fara í síðari ræðu um það. En hann spurði um viðhald eða dýpkun í Landeyjahöfn. Auðvitað er það slæmt ef fjármagn til dýpkunar er ófullnægjandi eins og áætlunin gerir ráð fyrir, 600 milljónum, 350 eftir fjárlögum. Raunþörf er, frú forseti, vissulega miklu meiri og miðað við reynslu undanfarinna ára er raunþörf á fjármagni til dýpkunar í Landeyjahöfn miklu nær 1 milljarði. Þá geta menn einnig séð þar hversu miklu það breytir þegar menn eru að velta því fyrir sér hvort jarðgangagerð borgi sig, hvað sparast á móti. Menn eru að tala um að endurnýja vatnslögn, fleiri milljarðar í kostnað, raflagnir og fleira. Þetta breytir auðvitað dæminu verulega (Forseti hringir.) og ég kem að því síðar.