157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þarna erum við kannski að komast með umræðuna á einhvern vitrænan grunn. Út á við hefur hún legið þannig, þessi umræða, að hér væri bara allt að gerast, þetta muni allt koma á næstu fimm árum, en það er aldrei talað um þessar forsendur sem eru á bak við. Það fer náttúrlega eftir því hvernig efnahagslífið gengur. Það fer eftir velgengni ríkissjóðs, sem er náttúrlega nokkuð góð, hér hefur rekstur ríkissjóðs verið alveg ótrúlega góður eftir gríðarlega erfiða tíma, sama í hvaða sögulega samhengi við skoðum það, það er mikilvægt að halda því til haga.

Svo langar mig að spyrja varðandi varaflugvallargjaldið: Er það rétt að þjónustusamningur við ríkið, ríkisins og Isavia Innanlandsflugvellir ehf., fjárfestingarhlutinn, þessar 350–500 milljónir sem hafa verið þar inni í áratug — eru þær farnar út? Á varaflugvallargjaldið að fjármagna innanlandsflugvallakerfið? Þessi spurning er einföld og þetta er umræða sem skiptir gríðarlegu máli varðandi flugvallakerfi þjóðarinnar.